Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 742/2009

Nr. 742/2009 1. september 2009
REGLUGERÐ
um bann við línu- og handfæraveiðum á Fljótagrunni.

1. gr.

Frá og með 3. september 2009 eru allar línu- og handfæraveiðar bannaðar á svæði á Fljótagrunni, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1.  66°07,00' N - 19°05,00' V

2.  66°07,00' N - 19°34,00' V

3.  66°14,00' N - 19°26,00' V

4.  66°14,00' N - 19°13,00' V

5.  66°11,00' N - 18°58,00' V

Að austan markast svæðið af fjöruborði meginlandsins.

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. september 2009.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.

B deild - Útgáfud.: 1. september 2009