1. gr. Í stað orðsins „Skattstjóri“ í 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: Ríkisskattstjóri. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðsins „skattstjóra“ í 2. tölul. 3. mgr., 5. mgr. og 6. mgr. kemur: ríkisskattstjóra. Í stað orðanna „14. gr. reglugerðar nr. 78/1997“ í 4. mgr. kemur: 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003.
3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. A reglugerðarinnar: - Í stað hlutfallsins „20,32%“ í 1. mgr. kemur: 19,35%.
- Í stað númersins „523/1988“ í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 751/2003.
4. gr. Í stað númersins „75/1981“ í 1. mgr. 10. gr. kemur: 90/2003. 5. gr. Í stað orðsins „skattstjóra“ í 3. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar og 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða kemur: ríkisskattstjóra. 6. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 16. gr., sbr. 49. gr., laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2015. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. desember 2014. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Guðrún Þorleifsdóttir. |