Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 551/2009

Nr. 551/2009 25. júní 2009
REGLUGERÐ
um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2008/2009.

1. gr.

Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2008/2009 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthluta aflaheimildum sem nema allt að 3.083 þorskígildislestum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðarlögum, þannig:

a. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

b. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

c. Til byggðarlaga skv. ákvæði til bráðabirgða, nr. VI, í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Byggðarlög samkvæmt 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 1.500, miðað við 1. desember 2008.

2. gr.

Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.

Aflaheimildir samkvæmt 1. gr. skiptast á eftirgreindar botnfisktegundir, miðað við slægðan fisk, þannig: Þorskur 1.420 lestir, ýsa 1.590 lestir, ufsi 1.111 lestir og steinbítur 239 lestir. Skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þessara tegunda áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar.

3. gr.

Úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga.

Við úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga skal miðað við að allt að 1.600 þorskígildislestum sé ráðstafað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

Þá skal miðað við að allt að 1.250 þorskígildislestum sé ráðstafað til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.

Þá skal 250 þorskígildislestum úthlutað til byggðarlaga sem úthlutað var sérstökum aflaheimildum frá Byggðastofnun, sbr. 4. gr. C.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skal við útreikning á hlut hvers byggðarlags sá kostur ávallt valinn fyrir hvert byggðarlag sem gefur því mestar aflaheimildir samkvæmt útreikningi 4. gr. A eða 4. gr. B.

4. gr.

Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:

A. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir samkvæmt 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 1.500. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:

1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 1998/1999 að telja til fiskveiðiársins 2007/2008, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 1.500 íbúa þann 1. desember 2008, skal gefa tvo punkta.

2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 1998/1999 að telja til fiskveiðársins 2008/2009, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 1.500 íbúa þann 1. desember 2008, skal gefa tvo punkta.

3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 1998/1999 að telja til fiskveiðiársins 2007/2008, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 1.500 íbúa þann 1. desember 2008, skal gefa fjóra punkta.

Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildislestir og að hámarki 150 þorskígildislestir.

Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiðiárið 2007/2008.

B. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags samkvæmt 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:

Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel og rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2001/2002, 2002/2003, 2003/2004, 2004/2005, 2005/2006 eða 2006/2007 að telja til fiskveiðiársins 2007/2008 koma aflaheimildir, sem nema 50 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 100 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 150 þorskígildislestir í þess hlut. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur.

C. Á fiskveiðiárinu 2008/2009 skal þeim byggðarlögum eða sveitarfélögum, sem úthlutað var sérstökum aflaheimildum frá Byggðastofnun, sbr. ákvæði til bráðabirgða XXVI við lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, á fiskveiðiárinu 2005/2006, úthlutað aflaheimildum sem nema 250 þorskígildislestum. Skulu þær skiptast milli byggðarlaga í sömu hlutföllum og úthlutun samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu skiptist á fiskveiðiárinu 2005/2006. Um framkvæmd þessa ákvæðis gilda að öðru leyti önnur ákvæði þessarar reglugerðar.

D. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A. lið hér að ofan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2007/2008, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2008/2009,leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildislestir, milli fiskveiðiáranna 2007/2008 og 2008/2009.

5. gr.

Tilkynningar um aflaheimildir.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sem undir þær falla.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2008/2009.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. júní 2009.

Jón Bjarnason.

Sigurgeir Þorgeirsson.

B deild - Útgáfud.: 25. júní 2009