Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1083/2009

Nr. 1083/2009 28. desember 2009
AUGLÝSING
um innheimtuhlutfall í staðgreiðslu árið 2010.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármálaráðuneytið árlega innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitar­stjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2010 verður 24,1% af tekjuskattsstofni að 2.400.000 kr., 27% af tekjuskattsstofni frá 2.400.001 kr. að 7.800.000 kr. og 33% af tekjuskattsstofni frá 7.800.001 kr. Meðalútsvar á árinu 2010 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitar­stjórna verður 13,12%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2010 verður því 37,22% af tekjuskattsstofni að 2.400.000 kr., 40,12% af tekjuskattsstofni frá 2.400.001 kr. að 7.800.000 kr. og 46,12% af tekjuskattsstofni frá 7.800.001 kr.

Fjármálaráðuneytinu, 28. desember 2009.

F. h. r.
Guðmundur Árnason.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2009