Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 738/2008

Nr. 738/2008 10. júlí 2008
AUGLÝSING
um deiliskipulagið, Framnes austan Nesvegar, í Grundarfjarðarbæ.

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti þann 13. mars 2008 deiliskipulagið Framnes austan Nesvegar. Deiliskipulagið nær til svæðis sem liggur frá Norðurgarði, norðan við Hrannarstíg og út á Framnesið austan við Nesveg. Um er að ræða reiti 6 og 9. Á svæðinu verður iðnaður og verslun auk blandaðrar starfsemi. Lóðamörk hafa verið endurskilgreind og byggingareitir óbyggðra lóða og núverandi húsa verið ákvarðaðir. Sjóvarnagarði hefur verið komið fyrir með ströndinni og gangstíg innan við hann. Þá hefur aðkomuleiðum að nokkrum lóðum verið breytt.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Grundarfirði, 10. júlí 2008.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar,
Hjörtur Hans Kolsöe.

B deild - Útgáfud.: 24. júlí 2008