Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 975/2010

Nr. 975/2010 1. desember 2010
SAMÞYKKT
um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er skipuð 9 bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil.

Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og stendur til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Valdsvið bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn Ísafjarðarbæjar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Verkefni bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Helstu verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar er:

  1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá bæjarfélaginu.
  2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  3. Að stjórna fjármálum bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
  4. Að ákveða stjórnkerfi bæjarfélagsins og ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu.
  5. Að upplýsa bæjarbúa um störf bæjarstjórnar og málefni bæjarins með upplýsingagjöf á heimasíðu bæjarins og með almennum borgarafundum og íbúaþingum.

II. KAFLI

Um fundarsköp bæjarstjórnar.

7. gr.

Fundartími bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi 1. og 3. fimmtudag hvers mánaðar sem ekki ber upp á almennan frídag. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17.00 og skulu að jafnaði ekki standa lengur en þrjár klukkustundir. Bæjarstjórn er heimilt að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

Heimilt er að halda bæjarstjórnarfundi með síma- eða fjarfundabúnaði ef veður og færð hamla eðlilegum samgöngum. Slíka fundi má þó aðeins halda ef brýna nauðsyn ber til og ekki er hægt að fresta afgreiðslu þeirra mála sem á dagskrá fundarins eru að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra. Tryggja skal almenningi aðgang að þessum fundum eins og um venjulegan bæjarstjórnarfund væri að ræða.

Bæjarstjóri getur ákveðið í samráði við forseta bæjarstjórnar að fresta eða fella niður fund ef sérstaklega stendur á.

8. gr.

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar.

Sá kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn kveður bæjarstjórnina saman til fyrsta fundar að afloknum bæjarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, sbr. 2. gr. samþykktar þessarar, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar átt jafnlengi setu í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar eða öðrum sveitarstjórnum sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.

9. gr.

Boðun bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri, sbr. þó 8. gr. samþykktar þessarar, boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það.

Heimilt er að boða með rafrænum hætti til bæjarstjórnarfunda.

10. gr.

Fundarstaður, aðgengi íbúa að bæjarstjórnarfundum.

Bæjarbúum skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir.

Miðað skal við að sem flestir íbúar bæjarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingu um bæjarstjórnarfundi. Þegar dagskrá bæjarstjórnarfundar hefur verið samin og send bæjarfulltrúum skal hún vera aðgengileg íbúum bæjarfélagsins, svo sem á auglýsingatöflu bæjarfélagsins, skrifstofu bæjarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma, heimasíðu bæjarins eða með öðrum hætti er bæjarstjórn ákveður.

11. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta bæjarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði, þar skal tilgreindur fundarstaður og fundartími. Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningar forseta bæjarstjórnar og varaforseta kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar svo og ráðningu bæjar­stjóra.
  2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
  3. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti bæjarstjórnar ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjar­stjórnar­fundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar.

Heimilt er að senda gögn til bæjarfulltrúa með rafrænum hætti.

12. gr.

Boðsending fundarboða.

Bæjarstjóri skal í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund hafa boðsent bæjarfulltrúum og varamönnum þeirra fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum. Rafræn boðun með dagskrá og fylgigögnum er heimil.

13. gr.

Boðun aukafunda.

Bæjarstjóri skal boðsenda bæjarfulltrúum fundarboð aukafundar í bæjarstjórn ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. Heimilt er þó að boða aukafund með styttri fyrirvara er aðkallandi mál bíður afgreiðslu, enda sé hann boðaður með dagskrá.

14. gr.

Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Sá bæjarfulltrúi sem boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. samþykktar þessarar, setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn.

Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem eiga sæti í bæjarstjórn, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta bæjarfulltrúa. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.

Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. næstu málsgrein hér að framan. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.

Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þegar að kjöri loknu.

Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti forsetastörfum nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef forseti deyr, verður varanlega forfallaður frá forsetastörfum eða nýtur ekki lengur trausts bæjarstjórnar sem forseti bæjarstjórnar áður en kjörtími hans er á enda skal kjósa forseta í hans stað það sem eftir er kjörtímabilsins.

15. gr.

Kosning skrifara.

Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu kosnir hlutfallskosningu.

Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.

16. gr.

Fundarstaður.

Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og bygg­ingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgengi fatlaðra.

Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

17. gr.

Opinn eða lokaður fundur.

Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

18. gr.

Lögmæti bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjar­stjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur.

19. gr.

Fundarstjórn.

Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála, og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundi. Forseti skal tilkynna bæjarstjórn um ákvörðun sína.

20. gr.

Afgreiðsla dagskrármála á fundi.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað.

Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð, sem á dagskrá er, verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum.

Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið sett á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Afgreiðsla mála, tvær umræður.

Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlun bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir bæjarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga skv. 75. gr. sveitar­stjórnar­laga.

22. gr.

Fundarsókn.

Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi.

Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjar­stjórnar­fundi.

23. gr.

Fundarsköp: Málfrelsi, tillögu- og atkvæðisréttur fundarmanna.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.

Forseti getur heimilað bæjarfulltrúa að taka til máls utan dagskrár, enda hafi hann ekki átt kost á því að fá málið sett á útsenda dagskrá í tæka tíð.

24. gr.

Vanhæfi bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarfélagsins.

Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

25. gr.

Fundarsköp: Takmarkanir á málfrelsi.

Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundar­gerðarinnar hann óskar að ræða.

Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd við fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti heimili annað.

26. gr.

Fundarsköp: Vítur á bæjarfulltrúa.

Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjar­stjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundar­hlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

27. gr.

Fundarsköp: Hve oft má tala.

Framsögumaður má tala þrisvar við hverja umræðu máls en aðrir bæjarfulltrúar tvisvar. Bæjarfulltrúa er þó heimilt að taka oftar til máls til að gera stutta athugasemd eða bera af sér ámæli. Forseti getur heimilað bæjarfulltrúa að gera stutta athugasemd oftar en einu sinni undir hverjum dagskrárlið sé um að ræða athugasemd um fundarsköp, fundarstjórn forseta eða til að bera af sér ámæli. Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi.

28. gr.

Fundarsköp: Takmarkanir á ræðutíma.

Við umræðu um mál skv. 3. tölul. 11. gr. samþykktar þessarar má ræðutími vera allt að 20 mínútur. Ræðutími í síðari ræðu má vera allt að 10 mínútur; hið sama gildir um þriðju ræðu framsögumanns og síðari ræður bæjarstjóra.

Við umræður um fundargerðir skv. 2. tölul. 11. gr. er ræðutími takmarkaður við 10 mínútur.

Við umræður um mál sem tekin eru á dagskrá skv. 2. mgr. og 3. mgr. 20. gr. og umræður utan dagskrár skv. 23. gr. ákveður forseti takmarkanir á ræðutíma.

Ræðutími bæjarfulltrúa sem óskar að bera af sér ámæli eða gera stutta athugasemd má vera allt að ein mínúta. Forseti getur þó heimilað lengri ræðutíma við umræður um fundarsköp sbr. 27. gr. samþykktar þessarar.

Forseta er heimilt að rýmka ræðutíma sé mál það umfangsmikið eða mikilvægt að ekki sé hægt að ræða það á fullnægjandi hátt innan þeirra reglna sem mælt er fyrir um í 1. mgr. Einnig er forseta heimilt að rýmka ræðutíma bæjarfulltrúa ef sérstaklega stendur á og nauðsyn krefur. Ákvörðun forseta samkvæmt þessari málsgrein skal liggja fyrir áður en umræða hefst. Við umræðu um fjárhagsáætlun, ársreikning og aðalskipulag Ísafjarðarbæjar skal ræðutími vera óbundinn.

Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur.

Þá getur forseti hvenær sem er lagt til að umræðu skuli lokið á ákveðnum tíma. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs.

Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust.

Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

29. gr.

Fundarsköp: Meðferð tillagna.

Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frest­unar­tillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

30. gr.

Fundarsköp: Afgreiðsla mála.

Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

31. gr.

Fundarsköp: Atkvæðagreiðsla.

Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að gefa merki þar um. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei, eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjar­stjórn samþykkir.

Kosningar skulu vera skriflegar og leynilegar ef þess er óskað.

32. gr.

Fundarsköp: Úrslit atkvæðagreiðslu.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu.

Við atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum máls nema öðru vísi sé ákveðið í lögum.

Verði atkvæði jöfn með máli og móti fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar sem fram fara í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við kosningu forseta bæjarstjórnar, sbr. 3. mgr. 14. gr. þessarar samþykktar.

33. gr.

Fundarritun – fundargerð.

Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn, töluröð fundar og hverjir sitji hann. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Í lok fundar skal fundargerð undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal forseti bæjarstjórnar og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.

Heimilt er að skrá fundargerðir í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Undirritaðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn í fundargerðabók bæjarstjórnar til varanlegrar varðveislu. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi sbr. 3. og 4. mgr. 17. gr. samþykktar þessarar skal skrá sem trúnaðarmál. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til máls sem til meðferðar er í bæjarstjórn. Forseti skal hafa eftirlit með því að fundargerðir séu skipulega og rétt færðar.

Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir bæjarfulltrúar undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað. Bæjarfulltrúi sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum skuli hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.

34. gr.

Íbúakosningar.

Bæjarstjórn er heimilt að leggja þau mál í dóm kjósenda sem hún álítur vera mjög þýð­ingar­mikil fyrir bæjarfélagið með skoðanakönnun eða atkvæðagreiðslu.

Ef 25% kosningabærra íbúa eða fleiri krefjast atkvæðagreiðslu um ákvörðun bæjarstjórnar ber bæjarstjórn að verða við þeirri kröfu. 

Bæjarstjórn skal ákveða áður en atkvæðagreiðsla fer fram hvort hún skal teljast bindandi eður ei. Skal það ákveðið hverju sinni. Til að atkvæðagreiðsla geti talist bindandi verður þátttaka þó ávallt að vera yfir 50% kosningabærra íbúa.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

35. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfunda.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál skv. 3. tölul. 11. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar, enda tilkynni hann það bæjarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólar­hringum fyrir fund.

36. gr.

Fundarseta.

Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli, sbr. 22. gr. samþykktar þessarar. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, svo sem forsetastörf og störf í bæjarráði eða öðrum nefndum á vegum bæjarstjórnar. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

37. gr.

Lausn úr bæjarstjórn.

Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils, sbr. 34. gr. sveitarstjórnarlaga. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

38. gr.

Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

39. gr.

Hagsmunir bæjarfélagsins.

Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarfélagsins en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

40. gr.

Aðgangur að upplýsingum.

Bæjarfulltrúi á aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

Með öll slík erindi skulu bæjarfulltrúar snúa sér til bæjarstjóra eða staðgengils hans. Ákvæði þetta takmarkar þó eigi rétt bæjarfulltrúa sem tilgreindur er í 1. mgr. þessarar greinar og 30. gr. sveitarstjórnarlaga.

41. gr.

Réttur bæjarfulltrúa til stuttrar bókunar.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn.

42. gr.

Þagnarskylda.

Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.

43. gr.

Þóknun.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Þá á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

44. gr.

Orlof og fundartími.

Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega, sbr. 7. gr. samþykktar þessarar.

45. gr.

Fjarvera vegna veikinda – varamenn.

Bæjarfulltrúi sem vegna veikinda eða af öðrum ástæðum getur ekki sótt bæjarstjórnarfund/-fundi tímabundið skal hlutast til um að varamaður verði boðaður sbr. 1. og 2. mgr. 22. gr. þessarar samþykktar.

46. gr.

Varamenn.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem taka sæti í bæjarstjórninni.

IV. KAFLI

Bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir.

47. gr.

Kosning í bæjarráð og nefndir.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Kosningar skulu vera skriflegar, leynilegar, bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúar óskar þess.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá.

48. gr.

Kosning í bæjarráð.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalfulltrúar í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð.

Í þeim tilfellum sem framboðslisti á einn aðalfulltrúa í bæjarstjórn er heimilt að kjósa vara­mann hans sem varafulltrúa hans í bæjarráði.

Bæjarstjóri á sæti í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.

Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjar­stjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila sem sæti á í bæjars­tjórn kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjar­stjórnar falla niður vegna sumarleyfa, sbr. 7. gr. samþykktar þessarar og 38. gr. sveitarstjórnarlaga.

49. gr.

Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fundi einu sinni í viku. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

Heimilt er að halda fund með síma- eða fjarfundabúnaði.

50. gr.

Undirbúningur og boðun bæjarráðsfunda.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. hálfum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann að jafnaði boða varamann sinn eða hlutast til um að varamaður verði boðaður.

51. gr.

Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs.

Á fyrsta fundi nýkjörins bæjarráðs skal kjósa formann og varaformann bæjarráðs. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en bera má úrskurði hans undir bæjarráð. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmaður óskar þess.

Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerðar bæjarstjórnarinnar, sbr. 33. gr. samþykktar þessarar.

52. gr.

Bæjarráð: Fjármálastjórn og fullnaðarafgreiðsla mála.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhags­áætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Heimilt er að bóka afgreiðslu slíkra mála í sérstaka trúnaðarbók ef um er að ræða viðkvæm persónuleg málefni.

Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.

Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

53. gr.

Starfsmenn á fundi bæjarráðs.

Skylt er starfsmönnum bæjarfélagsins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.

54. gr.

Boðun fyrsta nefndarfundar.

Bæjarstjóri boðar nefndir, ráð og stjórnir saman til fyrsta fundar eftir að þær hafa verið kjörnar eða ákveður hver annist fundarboðun nema bæjarstjórn hafi kosið formann sérstaklega. Ákveður þá formaðurinn boðun til fyrsta fundar. Á fyrsta fundi skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða samþykkt þessi kveði á um annað.

Bæjarstjóri getur kallað saman tvær eða fleiri nefndir til að ræða mál er varða starfssvið fleiri nefndar en einnar.

55. gr.

Fundarseta.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bæjarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

56. gr.

Lokaðir fundir.

Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

57. gr.

Fundarstjórn.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins, eftir því sem við á.

58. gr.

Hlutverk og valdsvið nefnda.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar.

59. gr.

Fundargerðir.

Nefndir, ráð og stjórnir bæjarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerðar bæjarstjórnarinnar, sbr. 33. gr. samþykktar þessarar.

Sé fjarfundur haldinn undirrita þeir sem ekki voru viðstaddir á fundinum fundargerð á næsta fundi eða á bæjarskrifstofu.

60. gr.

Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna bæjarfélagsins skulu að jafnaði teknar á dagskrá bæjarráðs og bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega á dagskrá.

Ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar sem hefur í för með sér útgjöld utan ramma fjárhags­áætlunar skal ætíð lögð fyrir bæjarráð og síðan bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

Ávallt skal staðfesta fundargerð umhverfisnefndar í bæjarstjórn.

61. gr.

Nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar.

Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

A. Nefndir. Hér er um að ræða fagnefndir sem sinna faglegu starfi þeirra málaflokka sem þeim hafa verið falin af bæjarstjórn með erindisbréfum.

  1. Bæjarráð. Bæjarstjórn kýs þrjá bæjarfulltrúa og þrjá til vara í bæjarráð skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Bæjarráð er kosið árlega. Kjósa skal í bæjarráð á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan árlega í júní ár hvert. Ákvæði 48. gr. samþykktar þessarar gilda um þá flokka eða framboðsaðila sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn en ekki fá kjörinn bæjarráðsmann. Auk verkefna sem tilgreind eru í erindisbréfi bæjarráðs fer bæjarráð með verkefni kjaranefndar, starfskjaranefndar, fer með menningarmál sem eru málefni bókasafna samkvæmt ákvæðum laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997, einnig annarra safna. Bæjarráð tilnefnir fulltrúa í stjórn héraðsskjalasafns og Byggðasafns Vestfjarða. Tilnefningar bæjarráðs eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Bæjarráð er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt þjóðminjalögum. Bæjarráð fer jafnframt með vinabæjarsamskipti, hátíðahöld og málefni félagsheimila og málefni húsnæðis­nefndar samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998.
  2. Fræðslunefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í fræðslunefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjar­stjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Fræðslunefnd fer með málefni leikskóla samkvæmt leikskólalögum nr. 90/2008, grunnskóla samkvæmt grunnskólalögum nr. 91/2008, tónlistarskóla sam­kvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og samstarfs­samningum um rekstur hans hverju sinni. Einnig fer hún með málefni framhaldsskóla samkvæmt ákvæðum framhaldsskólalaga nr. 92/2008 og samstarfssamningum sem gilda um rekstur framhaldsskóla hverju sinni. Auk verkefna sem fræðslunefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
  3. Íþrótta- og tómstundanefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í íþrótta- og tómstundanefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmál í bæjarfélaginu, þar með talið eftirlit með íþróttamannvirkjum en þau eru rekin af Eignasjóði, málefni félagsmiðstöðva og vinnuskóla. Nefndin skal stuðla að samstarfi í íþróttamálum m.a. með nánu samstarfi við Héraðssamband Vestfirðinga. Auk verkefna sem íþrótta- og tómstundanefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
  4. Félagsmálanefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í félagsmálanefnd, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Félagsmálanefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Félagsmálanefnd fer með verkefni jafnréttisnefndar samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Þá hefur félagsmálanefnd umsjón með daggæslu í heimahúsum, með framkvæmd á málefnum fatlaðra og málefnum aldraðra, sbr. lög um málefni aldraðra nr. 125/1999. Félagsmálanefnd annast yfirstjórn Hlífar, íbúða aldraðra á Ísafirði. Auk verkefna sem félagsmálanefnd hefur með höndum samkvæmt lögum og samþykkt þessari getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. Formaður nefndarinnar eða sá sem nefndin tilnefnir er jafnframt í þjónustuhópi aldraðra í heilsugæsluumdæminu.
  5. Atvinnumálanefnd. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í atvinnu­mála­nefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Atvinnumálanefnd starfar að atvinnu- og ferðamálum. Nefndin skal greina leiðir til að efla atvinnulíf í Ísafjarðarbæ og auka samkeppnis­hæfni þess. Nefndin gerir tillögur til bæjarstjórnar um aðgerðir og úrbætur í atvinnumálum. Atvinnumálanefnd skal stuðla að samstarfi fyrirtækja á svæðinu og nýta tengsl við hagsmunasamtök í atvinnu- og ferðamálum á svæðinu. Nefndin hefur það hlutverk að hvetja fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri, t.d. með veitingu viðurkenninga árlega.
  6. Umhverfisnefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í umhverfis­nefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Umhverfisnefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með byggingar- og skipulagsmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Umhverfisnefnd sinnir lögbundnum verk­efnum gróðurverndarnefndar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965, náttúruverndarnefndar samkvæmt náttúruverndarlögum nr. 44/1999 og umferðar­nefndar samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987. Nefndin skal í störfum sínum huga að ferlimálum fatlaðra samkvæmt lögum þar um. Umhverfisnefnd fer með stjórn vatnsveitu, fráveitu, Eignasjóðs og Funa að því marki sem þau verkefni eru ekki falin öðrum nefndum. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um búfjárhald, dýraeftirlit, refa- og minkaeyðingu, meindýraeyðingu, fjallskil og fjárgirðingar, sbr. ákvæði gildandi laga þar um. Auk verkefna sem umhverfisnefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
  7. Hafnarstjórn. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í hafnarstjórn samkvæmt lögum um hafnamál nr. 61/2003. Bæjarstjórn kýs hafnarstjórn formann og varaformann. Stjórnin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Auk verkefna sem hafnarstjórn hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
  8. Kjörstjórnir. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn, sbr. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um sveitarstjórnarkosningar nr. 5/1998. Undirkjörstjórnir eru jafnmargar og kjördeildir eru: Þrír aðalmenn skulu kjörnir í hverja og jafnmargir varamenn. Yfirkjörstjórn er kosin á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Kjörstjórnir fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum fyrrgreindra laga.

B. Stjórnir og samstarfsráð. Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu bæjarstjórnar til að koma málum í framkvæmd innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar.

  1. Almannavarnanefnd. Samkvæmt samkomulagi Ísafjarðarbæjar, Súðavíkurhrepps og lögreglustjórans á Vestfjörðum dags. 3. janúar 2007 og byggt á staðfestingu dómsmálaráðuneytis 24. september 2006 eru sveitarfélögin með eina almanna­varna­nefnd. Skipað er í nefndina skv. 1. gr. samkomulagsins en ekki kosið af bæjarstjórn þrátt fyrir ákvæði almannavarnalaga.
  2. Barnaverndarnefnd. Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur og Bolungarvíkurkaupstaður standa sameiginlega að meðferð barnaverndarmála samkvæmt samningi dags. 18. febrúar 2003. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kýs þrjá nefndarmenn og þrjá til vara. Nefndin kýs sér formann. Barnaverndarnefnd starfar skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002. Verkefni barnaverndarnefndar er skilgreint í erindisbréfi og verður því eigi breytt nema með samþykki samstarfsaðila eða skv. lagaskyldu.
  3. Heilbrigðisnefnd. Sveitarstjórnirnar á svæðinu kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
  4. Stjórn Byggðasafns Vestfjarða. Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa og einn til vara í stjórn Byggðasafnsins. Stjórnin kýs sér formann. Safnið er sameign Ísafjarðarbæjar, Súðavíkurhrepps og Bolungarvíkurkaupstaðar.
  5. Búfjáreftirlitsnefnd. Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa og einn til vara í búfjáreftirlitsnefnd. Nefndin er sameiginleg með Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhreppi (Búfjár­eftirlits­svæði 10). Hana skipa þrír menn og jafnmargir til vara. Búfjáreftirlits­nefnd gerir tillögu um skipan búfjáreftirlitsmanna til viðkomandi sveitarstjórna.

C. Tilnefningar og kosningar. Kosnir fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana sem bærinn á aðild að.

  1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum um Samband íslenskra sveitarfélaga kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sam­bandsins. Fulltrúar bæjarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjör­innar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
  2. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands samkvæmt lögum um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands. Fulltrúar bæjarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
  3. Fjórðungssamband Vestfirðinga. Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa á aðalfund Fjórðungssambands Vestfirðinga samkvæmt lögum sambandsins.

D. Lögbundin kosning embættismanna. Samkvæmt lögum ber bæjarstjórn að kjósa eftirtalda embættismenn.

  1. Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga. Bæjarstjórn kýs tvo skoðunarmenn og jafn­marga til vara samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Skoðunarmenn bæjarsjóðs­reikninga eru kosnir á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

E. Hverfisráð. Bæjarstjórn setur samþykktir fyrir hverfisráð á Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Holtahverfi, Eyrinni í Skutulsfirði og í Hnífsdal.

  • Aðeins er heimilt að starfrækja eitt hverfisráð skv. samþykkt þessari í hverju hverfi.
  • Á stofnfundi hverfisráðs sem íbúar hverfis eru boðaðir á eru 5 fulltrúar kosnir í nefndina og 2 til vara. Fulltrúar í hverfisráði eru kosnir til tveggja ára í senn.
  • Hverfisráð setja sér sjálf starfsreglur sem samþykktar skulu á aðalfundum íbúa hverfanna en um starfshætti ráðanna gilda almenn ákvæði um frjáls félög og fundarsköp. Hlutverk hverfisráða er að vera vettvangur íbúanna til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt.
  • Hverfisráð skulu halda fundi reglulega en að lágmarki einn aðalfund árlega og gera þar grein fyrir starfseminni. Tilkynna skal um slíkan fund til Ísafjarðarbæjar því þar skal farið yfir samvinnu við bæinn, hlutverk og framtíðarsýn.
  • Tengiliður hverfisráða við bæjarkerfið er í gegnum bæjarritara sem aðstoðar við upplýsingaöflun úr bæjarkerfinu og sér til þess að fundargerðir hverfisráða séu birtar á vef bæjarins.
  • Gera skal ráð fyrir ákveðnu fjárframlagi til hverfisráða í gegnum fjárhagsáætlun hvers árs. Það er ætlað til að greiða t.d. pappír, póstburðargjöld og annan umsýslukostnað í tengslum við hlutverk þeirra.
  • Hverfisráð kemur erindum sínum á framfæri við bæjarstjórn eða stjórnsýslu bæjarins með formlegum hætti, þ.e. með bréfi, tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti.

F. Verkefnabundnar nefndir. Bæjarstjórn getur kosið nefndir (lausanefndir) til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Bæjarstjórn útbýr erindisbréf fyrir nefndina þar sem hlutverk og staða nefndarinnar er skilgreint.

G. Kjörtímabil nefnda. Sé kjörtímabil nefndar ekki sérstaklega tekið fram er það hið sama og bæjarstjórnar.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarfélagsins.

62. gr.

Ráðning bæjarstjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn.

63. gr.

Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjar­stjórnar, semur dagskrá og boðar til fundar, sbr. 9. gr. samþykktar þessarar.

Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn eða bæjarráði. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarfélagsins með sömu réttindum.

Bæjarstjóri hefur með höndum málefni bæjarfélagsins og framkvæmd ákvarðana bæjar­stjórnar að svo miklu leyti sem bæjarstjórn ákveður ekki annað.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjar­stjórnarinnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnarinnar að veita öðrum starfsmanni bæjarfélagsins prókúru.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarfélagsins.

Bæjarritari er staðgengill bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn ákveði annað.

64. gr.

Ráðning stjórnenda.

Bæjarstjórn ræður sviðsstjóra. Enn fremur ræður bæjarstjórn, að fengnum tillögum við­komandi fagráða og stjórna, framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag sem eru í eigu bæjarsjóðs.

65. gr.

Ráðning starfsmanna.

Bæjarstjóri ræður stjórnendur stofnana að fengnum tillögum viðkomandi fagnefnda. Sviðs­stjórar og stjórnendur stofnana ráða aðra starfsmenn.

66. gr.

Fastráðnir starfsmenn.

Fastráðnir starfsmenn bæjarfélagsins skulu ráðnir til óákveðins tíma með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti miðað við mánaðamót.

Gera skal skriflegan ráðningarsamning við fastráðna starfsmenn þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma og uppsagnarfrest, sbr. 1. mgr., svo og starfssvið þeirra. Um starfskjör, réttindi og skyldur fer eftir ráðningarsamningi og/eða gildandi kjarasamningum.

67. gr.

Lausráðnir starfsmenn.

Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir reglum sem bæjarstjórn setur. Um starfskjör, réttindi og skyldur fer eftir ráðningarsamningi og/eða kjarasamningum viðkomandi stéttar­félaga.

68. gr.

Starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, reglum um ábyrgðarmörk, starfsmanna­stefnu og jafnréttisáætlun.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn bæjarfélagsins.

69. gr.

Afgreiðsla fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins fyrir lok desembermánaðar ár hvert vegna næsta rekstrarárs að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn.

Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. skal bæjarstjórn sækja skriflega um frest til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreikninga bæjarfélagsins. Í fjárhags­áætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjar­sjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár, ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhags­áætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

Bæjarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.

70. gr.

Þriggja ára áætlun.

Til viðbótar fjárhagsáætlun skv. 71. gr. skal bæjarstjórn árlega semja þriggja ára áætlun skv. 63. gr. sveitarstjórnarlaga um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarfélagsins. Áætlunin skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarfélagsins og skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

71. gr.

Fjárhagsáætlun.

Fjárhagsáætlun skv. 69. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samnings­bundin eða samþykkt af bæjarstjórn.

Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhags­áætluninni.

72. gr.

Endurskoðun fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn er heimilt að endurskoða fjárhagsáætlun hafi forsendur fyrir henni breyst. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu í bæjarstjórn, enda hafi breytingar­tillögurnar verið sendar bæjarfulltrúum með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnar­fundar.

73. gr.

Skil áætlana til ráðuneytis.

Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar skal senda samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 69. og 71. gr. og þriggja ára áætlun skv. 70. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 72. gr.

74. gr.

Afgreiðsla ársreikninga.

Ársreikningur bæjarsjóðs og fyrirtækja og stofnana skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert skv. 72. gr. sveitar­stjórnarlaga.

Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endur­skoðenda og skoðunarmanna.

Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn.

Eintak af ársreikningum skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.

Viðurlög skv. 4. mgr. 72. gr. sveitarstjórnarlaga liggja við vanrækslu bæjarstjórnar á afgreiðslu og skilum ársreikninga.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 211/2001.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 1. desember 2010.

F. h. r.

Stefanía Traustadóttir.

Hjördís Stefánsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 15. desember 2010