1. gr. A-liður 3. gr. orðist svo: lýsingu á aðstöðu í aðalstarfsstöð fræðsluaðila, húsnæði og búnaði, ásamt vottorðum frá yfirvöldum heilbrigðis- og brunamála og lýsingu á aðgengi fatlaðra, D-liður 3. gr. orðist svo: staðfestingu á því hvernig fjárhagslegri ábyrgð sé háttað og hvernig fjárhagslegt rekstraröryggi starfseminnar sé tryggt og endurskoðaðan og áritaðan ársreikning næstliðins starfsárs. 2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 17. gr. laga nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu, öðlast þegar gildi. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 13. október 2014. Illugi Gunnarsson. Ásta Magnúsdóttir. |