1. gr. Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflaheimilda í íslenskri sumargotssíld skv. ákvæði VIII til bráðabirgða í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. 2. gr. Úthluta skal allt að 500 lestum af íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2012/2013 til skipa allt að 200 brúttótonn að stærð og ekki stunda veiðar með vörpu. Heimilt er að úthluta á skip allt að 8 lestum í senn gegn greiðslu gjalds enda hafi viðkomandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni. Úthlutun hverju sinni er bundin því skilyrði að skip hafi veitt 80% af áður úthlutuðum heimildum samkvæmt þessari grein. 3. gr. Fiskistofa annast úthlutun aflaheimilda á grundvelli umsókna og skal vikulega úthluta aflaheimildum á grundvelli umsókna sem borist hafa undanfarandi viku. Ef umsóknir um aflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á aflaheimildum íslenskrar sumargotssíldar er 13 kr. hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi á öðrum virkum degi úthlutunarviku fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður og skiptast aflaheimildirnar á önnur skip enda hafi úthlutun þeirra ekki numið 8 lestum. Á heimasíðu Fiskistofu skal vikulega birta upplýsingar um magn sumargotssíldar sem til ráðstöfunar er. 4. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi. Reglugerð nr. 931/2011 um ráðstöfun aflaheimilda í íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2011/2012 er felld úr gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. september 2012. F. h. r. Kristján Skarphéðinsson. Arnór Snæbjörnsson. |