Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 647/2015

Nr. 647/2015 29. júní 2015

SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Langanesbyggðar nr. 612/2013.

1. gr.

1. mgr. 8. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi:

Sveitarstjórn Langanesbyggðar heldur reglulega fundi sveitarstjórnar annan og fjórða hvern fimmtudag í mánuði, kl. 17.00. Ef reglubundinn fundur lendir á lögboðnum frídegi færist fundurinn fram um einn dag nema annað sé ákveðið.

2. gr.

Í lok 1. mgr. l-stafliðar 15. gr. samþykktarinnar falla brott orðin „Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar".

3. gr.

1. mgr. 35. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi:

Heimilt er sveitarstjórn að ákveða að framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn nefndarmann í nefnd, sbr. A. lið 39. gr., er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa og varaáheyrnarfulltrúa til setu í viðkomandi nefnd með málfrelsi og tillögurétt. Áheyrnarfulltrúi skv. þessari málsgrein á ekki rétt til nefndarlauna.

4. gr.

39. gr. samþykktarinnar ásamt fyrirsögn verður svohljóðandi:

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

A. Fulltrúar kjörnir til 4 ára í fastanefndir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Sveitarstjórn kýs ráðunum formann.

  1. Kjörstjórn við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og skv. 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Kjörstjórn kýs sér oddvita og ritara úr sínum hópi. Kjörstjórnir fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna og laga um kosningar til Alþingis. Ennfremur kýs sveitarstjórn tvær undirkjörstjórnir, þrjá aðalmenn í hvora og jafnmarga varamenn.
  2. Atvinnu- og ferðamálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar samkvæmt lögum og reglugerðum þar um og sinnir auk þess verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  3. Hafnarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar samkvæmt lögum um hafnamál nr. 61/2003 og sinnir auk þess verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  4. Umhverfis- og skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með umhverfis- og skipulagsmál samkvæmt m.a. skipulagslögum nr. 123/2010 og reglugerðum með stoð í þeim og öðrum þeim lögum og reglugerðum sem við eiga auk verkefna sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  5. Landbúnaðarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með verkefni landbúnaðarmála samkvæmt lögum og reglugerðum auk verkefna sem henni eru falin samkvæmt samþykktum.
  6. Fræðslunefnd. Sveitarstjórn Langanesbyggðar kýs fjóra aðalmenn og jafnmarga til vara og hreppsnefnd Svalbarðshrepps kýs einn aðalmann og einn til vara samkvæmt samstarfssamningi. Nefndin fer með verkefni leikskóla og grunnskóla skv. lögum um leikskóla nr. 90/2008 og lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og reglugerðum þar að lútandi. Þá fer nefndin með málefni tónlistarskóla og framhaldsskóla eftir því sem við getur átt og önnur þau verkefni sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  7. Íþrótta- og tómstundanefnd. Sveitarstjórn Langanesbyggðar kýs fjóra aðalmenn og jafnmarga til vara og hreppsnefnd Svalbarðshrepps kýs einn aðalmann og einn til vara samkvæmt samstarfssamningi. Nefndin fer með verkefni íþrótta- og tómstundamála samkvæmt lögum og reglugerðum þar um auk verkefna sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  8. Menningar- og bókasafnsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með menningar- og bókasafnsmál, gegnir hlutverki bókasafnsstjórnar skv. bókasafnslögum nr. 150/2012 og innir af hendi önnur þau verkefni sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  9. Velferðarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með velferðarmál, gegnir hlutverki jafnréttisnefndar skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, annast um öldrunarþjónustu eftir því sem við getur átt sbr. lög um málefni aldraðra nr. 125/1999, annast um málefni fatlaðra eftir því sem við getur átt sbr. lög um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 og önnur þau verkefni sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  10. Húsnæðisnefnd. Sveitarstjórn fer með hlutverk húsnæðisnefndar sbr. lög um húsnæðismál nr. 44/1998.

B. Aðrar stjórnir, ráð, fulltrúar og samstarfsnefndir á vegum sveitarfélagsins þar sem sveitarstjórn skipar fulltrúa eða fulltrúar eru skipaðir af viðkomandi nefndum sveitarstjórna.

  1. Almannavarnanefnd Þingeyinga. Fulltrúar skipaðir af héraðsnefnd Þingeyinga á fyrsta fundi hennar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
  2. Félags- og barnaverndarnefnd Þingeyinga. Fulltrúar skipaðir af héraðsnefnd Þingeyinga á fyrsta fundi hennar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
  3. Heilbrigðisnefnd. Sveitarstjórnir á Norðurlandi eystra kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina. Nefndin starfar samkvæmt lögum og reglugerðum þar um.
  4. Náttúruverndarnefnd. Fulltrúar skipaðir af héraðsnefnd Þingeyinga á fyrsta fundi hennar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
  5. Þjónustuhópur aldraðra. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara.
  6. Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara.
  7. Fulltrúar á aðalfund Eyþings. Sveitarstjórn kýs tvo aðalmenn og jafnmarga til vara samkvæmt 4. gr. í lögum Eyþings – sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.
  8. Fulltrúi í héraðsnefnd Þingeyinga. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara samkvæmt 6. gr. samþykkta héraðsnefndar Þingeyinga.
  9. Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Nausts. Sveitarstjórn kýs tvo aðalmenn og jafnmarga til vara.

C. Verkefnabundnar nefndir.

Sveitarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.

5. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 29. júní 2015.

F. h. r.

Elín Pálsdóttir.

Stefanía Traustadóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. júlí 2015