Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 867/2011

Nr. 867/2011 23. september 2011
AUGLÝSING
um ásetningshlutfall sauðfjár almanaksárið 2012.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið, að tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga, að til að hljóta fullar beingreiðslur árið 2012 skuli fjöldi vetrarfóðraðra kinda vera að lágmarki 0,6 á hvert ærgildi greiðslumarks á lögbýli. Ákvörðun þessi nær til framleiðslu almanaksárið 2012 og skal miða talningu á fjölda sauðfjár við sannreynda talningu búfjáreftirlitsmanns sem framkvæma skal fyrir 15. apríl 2012.

Auglýsing þessi er sett með heimild í 3. mgr. 39. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. september 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 26. september 2011