FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 45. gr. er framhaldsskólum heimilt fram til loka skólaársins 2011–2012 að taka sérstakt gjald af nemendum sem nema má allt að 7.500 kr. á hverja námseiningu en þó aldrei hærra en leiðir af meðalframlagi á ársnemanda hvers skóla eins og það er ákveðið í fjárlögum hvers árs.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 23. desember 2009. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Katrín Jakobsdóttir. |