1. gr. Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða kostnað vegna tæknifrjóvgunar samkvæmt gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð nr. 917/2011 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. síðari breytingar. 2. gr. Endurgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands reiknast út frá eftirfarandi gjaldskrá (heildarverð): | Gjaldskrárnr. | Heiti læknisverks | Krónur | | | Glasafrjóvgun (IVF) | | | 57-060-03 | fyrri hluti | 62.872 | | 57-060-04 | seinni hluti | 251.488 | | | Smásjárfrjóvgun (ICSI) | | | 57-061-03 | fyrri hluti | 75.338 | | 57-061-04 | seinni hluti | 301.352 |
Ef verð þjónustu er lægra en gjaldskrá þessi kveður á um skal endurgreiðslan miðuð við verð þjónustunnar. Ef ekki er unnt að ljúka meðferð, sem hafin er, skal miðað við að 20% meðferðarinnar (þ.e. fyrri hluta), sbr. ofangreinda gjaldskrá, sé lokið. Innifalið í meðferð skv. ofangreindum gjaldskrárliðum teljast eftir því sem við á skoðanir og viðtöl sérfræðinga, mælingar á b-HCG og nauðsynleg lyf vegna meðferðarinnar, þó ekki örvunarlyf eggjastokka. 3. gr. Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, og reglugerð nr. 917/2011, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. síðari breytingar, öðlast þegar gildi og tekur til þjónustu sem veitt er á tímabilinu 1. janúar – 31. desember 2012. Sjúkratryggingum Íslands, 14. desember 2011. Steingrímur Ari Arason. Kristján Guðjónsson. |