Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 768/2010

Nr. 768/2010 28. september 2010
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um lyfjamál (IX).

1. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1950/2006 frá 13. desember 2006 um skrá, í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/82/EB um Bandalagsreglur um dýralyf, yfir efni sem eru nauðsynleg við meðhöndlun dýra af hestaætt, sem vísað er til í lið 15za í XIII. kafla II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2007 frá 26. október 2007 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

2. gr.

Reglugerðin og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2007, sbr. 1. gr., sem birt hefur verið í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 19, frá 10. apríl 2008, bls. 68, eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 28. september 2010.

Guðbjartur Hannesson.

Guðríður Þorsteinsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 13. október 2010