Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1032/2010

Nr. 1032/2010 13. desember 2010
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn Fljótsdalshéraðs og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1062/2004 með síðari breytingum.

1. gr.

Við 6. tölul. B-hluta 59. greinar bætist eftirfarandi setning: Þá fara fulltrúar Fljótsdalshéraðs jafnframt með hlutverk jafnréttisnefndar fyrir Fljótsdalshérað skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.

2. gr.

7. tölul. B-liðar í 59. grein fellur niður.

3. gr.

Númer annarra töluliða í B-lið 59. greinar breytast í samræmi við framangreinda breytingu.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Fljótsdalshérað hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. desember 2010.

F. h. r.

Stefanía Traustadóttir.

Jóhannes Finnur Halldórsson.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2010