Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum samþykkti bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar þann 28. janúar 2011 deiliskipulag Hjarðarbóls, Grundarfirði. Í deiliskipulaginu eru markaðar sjö lóðir fyrir frístundahús, allar 4.854 m² að stærð. Ein lóðin er þegar byggð. Hámarksstærð húsanna er 100 m², mesta leyfilega mænishæð er 4,6 m og þakhalli skal vera á bilinu 15 – 35°. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi. Grundarfirði, 20. apríl 2011. Smári Björnsson skipulagsfulltrúi. |