Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1064/2012

Nr. 1064/2012 20. nóvember 2012
REGLUGERÐ
um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2012 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr.

Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorku­byrði lífeyrissjóða fyrir árið 2012 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætl­aðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorku­byrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.

Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyris­sjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr.

Úthlutun fjárframlags árið 2012.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2012 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyris­réttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2011 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2011 samtals kr. 834.303.605.634 og er áætlað fjár­framlag ársins 2011 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 2.711.486.718 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

33.337.729

1,230%

Eftirlaunasjóður FÍA

10.181.633

0,376%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

704.987

0,026%

Eftirlaunasj. starfsm. Hafnarfjarðarkaupstaðar

2.413.223

0,089%

Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands

528.740

0,020%

Festa lífeyrissjóður

259.394.377

9,567%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

98.508.312

3,633%

Gildi lífeyrissjóður

929.660.336

34,286%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

14.560.684

0,537%

Kjölur lífeyrissjóður

3.158.882

0,117%

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar

2.155.632

0,080%

Lífeyrissjóður bankamanna - aldurs

17.977.157

0,663%

Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfalls

17.516.204

0,646%

Lífeyrissjóður bænda

13.042.251

0,481%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

22.437.553

0,828%

Lífeyrissjóður Neskaupstaðar

406.723

0,015%

Lífeyrissjóður Rangæinga

17.001.022

0,627%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar

2.006.500

0,074%

Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka
Íslands hf.

1.816.696

0,067%

Lífeyrissjóður starfsm. Húsavíkurkaupstaðar

1.193.054

0,044%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

2.738.602

0,101%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

23.481.475

0,866%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

102.290.836

3,773%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

99.972.515

3,687%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

34.083.388

1,257%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

14.750.488

0,544%

Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar

1.450.645

0,054%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

1.301.514

0,048%

Lífeyrissjóður verkfræðinga

3.904.541

0,144%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

322.910.953

11,909%

Lífeyrissjóður Vestfirðinga

54.880.491

2,024%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

71.135.854

2,624%

Sameinaði lífeyrissjóðurinn

86.076.146

3,175%

Stafir lífeyrissjóður

69.603.864

2,567%

Stapi lífeyrissjóður

317.881.145

11,724%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

57.022.566

2,103%

Samtals

2.711.486.718

100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2013, í október 2013, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2012 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2011.

4. gr.

Leiðrétting fjárframlags ársins 2011.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2010 er kr. 773.627.964.387. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2010 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1220/2011, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2011 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2010 er kr. 4.054.852.657 til lækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2011 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2011, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1220/2011, nemur því samtals kr. 13.178.271, til lækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2012 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar um þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

171.054

1,298%

Eftirlaunasjóður FÍA

40.457

0,307%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

4.217

0,032%

Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar


7.775

0,059%

Eftirlaunasjóður starfsmanna
Útvegsbanka Íslands


2.767

0,021%

Festa lífeyrissjóður

1.271.176

9,646%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

378.348

2,871%

Gildi lífeyrissjóður

4.737.852

35,952%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

102.263

0,776%

Kjölur lífeyrissjóður

18.845

0,143%

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar

10.674

0,081%

Lífeyrissjóður bankamanna - aldurs

99.496

0,755%

Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfalls

75.907

0,576%

Lífeyrissjóður bænda

70.240

0,533%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

108.853

0,826%

Lífeyrissjóður Neskaupstaðar

2.240

0,017%

Lífeyrissjóður Rangæinga

80.783

0,613%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar

13.047

0,099%

Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf.


7.907

0,060%

Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar


5.008

0,038%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

13.310

0,101%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar


121.899

0,925%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

483.643

3,670%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

495.635

3,761%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

147.860

1,122%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

68.263

0,518%

Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar


6.589

0,050%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

5.667

0,043%

Lífeyrissjóður verkfræðinga

18.977

0,144%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

1.332.191

10,109%

Lífeyrissjóður Vestfirðinga

300.201

2,278%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

362.271

2,749%

Sameinaði lífeyrissjóðurinn

471.782

3,580%

Stafir lífeyrissjóður

366.356

2,780%

Stapi lífeyrissjóður

1.503.509

11,409%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

271.209

2,058%

Samtals

13.178.271

100,000%

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. nóvember 2012.

F. h. r.

Hafdís Ólafsdóttir.

Lilja Sturludóttir.

B deild - Útgáfud.: 11. desember 2012