1. gr. 4. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo: Lúðuafli skal seldur á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafurðir. Lúðuafli sætir álagningu gjalds samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Það skal nema andvirði gjaldskylds afla. Forráðamenn uppboðsmarkaðarins þar sem aflinn er seldur standa skil á andvirði hins selda afla að frádregnum hafnargjöldum og kostnaði við uppboðið, eins og þessi kostnaður er markaður í reglugerð um kostnað vegna sölu afla á uppboðsmarkaði. Þá skal útgerð skipsins fá 20% af andvirði selds afla sem skiptist milli útgerðar og áhafnar samkvæmt samningum þar um. 2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr., 2. mgr. 7. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og öðlast þegar gildi. Ákvæði til bráðabirgða. Fyrsta viðmiðunartímabil skv. 1. gr. er 3. júlí til 30. september 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. nóvember 2013. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Jóhann Guðmundsson. |
Kristján Freyr Helgason. |