1. gr. Þvingunaraðgerðir. Á eftir 15. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum, komi nýir töluliðir sem hljóði svo: 16) | | Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/216/SSUÖ frá 14. apríl 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. | 17) | | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 381/2014 frá 14. apríl 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu. | 18) | | Ákvörðun ráðsins 2014/308/SSUÖ frá 28. maí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 19) | | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 577/2014 frá 28. maí 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 20) | | Ákvörðun ráðsins 2014/475/SSUÖ frá 18. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 21) | | Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 783/2014 frá 18. júlí 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 22) | | Ákvörðun ráðsins 2014/499/SSUÖ frá 25. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 23) | | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 810/2014 frá 25. júlí 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 24) | | Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 811/2014 frá 25. júlí 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 25) | | Ákvörðun ráðsins 2014/508/SSUÖ frá 30. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 26) | | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 826/2014 frá 30. júlí 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu. | 27) | | Ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu. | 28) | | Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu. |
2. gr. Fylgiskjöl. Gerðir, sem vísað er til í 16.-28. tölul., eru birtar sem fylgiskjöl 1-13 við reglugerð þessa. 3. gr. Gildistaka o.fl. Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Utanríkisráðuneytinu, 30. september 2014. Gunnar Bragi Sveinsson. Einar Gunnarsson. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal) |