1. gr. Endurupptaka máls. Málsaðili hefur rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun þjónustuhóps hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Telji aðili að framangreindar aðstæður eigi við um mál sitt getur hann óskað eftir endurupptöku þess og skal slíkum beiðnum beint til stjórnar byggðasamlagsins. 2. gr. Málskot. Þjónustuhópur byggðasamlagsins hefur heimild til afgreiðslu ákveðinna mála samkvæmt 3. gr. þessara reglna. Ákvörðun þjónustuhóps í einstaklingsmálum er þó ætíð unnt að skjóta til málsmeðferðarnefndar byggðasamlagsins til endanlegrar ákvörðunar. 3. gr. Skipun málsmeðferðarnefndar. Stjórn byggðasamlagsins skipar þriggja manna nefnd, til fjögurra ára í senn og skal einn nefndarmanna vera lögfræðingur. 4. gr. Málsmeðferð. Nefndin fjallar um umsókn og tekur ákvörðun svo fljótt sem unnt er, eða innan sex vikna frá því nefndinni barst mál til úrskurðar. Ef ástæða þykir til getur nefndin mælt fyrir um munnlegan eða skriflegan málflutning. Nefndin fjallar um málsmeðferð, rétt til þjónustu og hvort þjónustan er í samræmi við lög, reglugerðir eða reglur hlutaðeigandi sveitarfélags, sem settar eru á grundvelli laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 með síðari breytingum. Reglur sem falla undir þessa grein eru: a) reglur um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk, b) reglur um afgreiðslu umsóknar um skammtímavistun fyrir fatlað fólk, c) reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks og d) reglur um afgreiðslu umsókna um þjónustu á heimilum fatlaðs fólks og sértæk húsnæðisúrræði vegna sértækra eða mikilla þjónustuþarfa. 5. gr. Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum. Málsmeðferðarnefnd byggðasamlagsins tekur ákvarðanir skv. reglum þessum í umboði stjórnar byggðasamlags. 6. gr. Kæra. Ákvörðun málsmeðferðarnefndar má skjóta til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála og skal það gert innan þriggja mánaða frá því að viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun nefndarinnar. 7. gr. Birting og endurskoðun. Reglur þessar, sem settar eru skv. 5. gr. a., sbr. 55. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda. Reglurnar skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti að teknu tilliti til viðeigandi þjónustu- og gæðaviðmiða, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 59/1992. 8. gr. Gildistaka. Reglur þessar, sem samþykktar voru í stjórn byggðasamlagsins þann 4. desember 2012, öðlast þegar gildi. Skagafirði, 11. janúar 2013. F.h. samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri. |