Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 39/2012

Nr. 39/2012 7. júní 2012

LÖG
um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr. 85/2011 (kæruheimild).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Við 15. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Kæra má til æðri dóms úrskurð dómara um hvort lagt verði á nálgunarbann eða um brottvísun af heimili, svo og úrskurð sem gengur í máli um slíka kröfu, ef hann getur sætt kæru eftir almennum reglum 1. mgr. 192. gr. laga um meðferð sakamála. Um kæru gilda sömu reglur og um kæru úrskurðar héraðsdómara samkvæmt lögum um meðferð sakamála.

2. gr.
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 7. júní 2012.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Ögmundur Jónasson.


A-deild - Útgáfud.: 8. júní 2012

  Til baka