Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1063/2008

Nr. 1063/2008 19. september 2008

GJALDSKRÁ
fyrir heilbrigðis- og mengunareftirlit Vestfjarðasvæðis.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Vestfjarðasvæðis, samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breyt­ingum og reglugerðum settum með stoð í þeim, lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum, er aðildarsveitarfélögum heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Tímagjald

kr.

7.600

Gjald vegna rannsóknar pr. sýni skv. eftirlitsáætlun

kr.

10.000

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald af starfsemi eins og fram kemur á fylgiskjali, viðauka A, með gjaldskrá þessari, enda fari fram reglubundið eftirlit með starfseminni, skv. eftirlitsáætlun.

Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða að öðru leyti takmörkuð með svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjaldið.

Ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu síðastliðin þrjú ár, hefur haft vottað gæðakerfi síðastliðin þrjú ár eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni síðastliðin þrjú ár, sem heilbrigðisnefnd telur ganga lengra en reglur kveða á um, er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjöld samkvæmt þessari grein. Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlitsgjald, sem því nemur.

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögum heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:

 

Starfsleyfisgjald

eitt tímagjald

 

Auk auglýsingakostnaðar ef við á

   

Ný starfsemi:

 

Starfsleyfisgjald

 

eitt tímagjald

 

Auk eftirlitsgjalds viðkomandi fyrirtækjaflokks

 

Auk auglýsingakostnaðar ef við á

   

Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun:

 

Starfsleyfisgjald

eitt tímagjald

 

Skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar, úttektar og frágangs.

 

Auk auglýsingakostnaðar ef við á

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 30 dögum eftir útgáfudag leyfis.

5. gr.

Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Vestfjarðasvæðis gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og fyrir eiturbeiðnir skal greiða hálft tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vestfjarðasvæðis er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

6. gr.

Af starfsemi, sem upp er talin í viðauka með lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og Heilbrigðiseftirlit Vestfjarðasvæðis hefur eftirlit með samkvæmt samningi við Hollustuvernd ríkisins, skal greiða gjöld samkvæmt 2. gr.

7. gr.

Aðildarsveitarfélögin annast innheimtu eftirlitsgjalda. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarðasvæðis innheimtir önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, s.s. fyrir leyfi, vottorð, eiturbeiðnir og þjónustuverkefni.

Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við fylgiskjal gjaldskrárinnar, viðauka A, og sendir viðkomandi aðildarsveitarfélagi.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 12. og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

8. gr.

Gjalddagi gjalda samkvæmt 2. gr. er 1. júlí og eindagi 1. ágúst ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

9. gr.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa, á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald, þá í þeim flokki sem hærri er.

10. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs Heilbrigðiseftirlits Vestfjarðasvæðis skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 635/2005.

Bolungarvík, 19. september 2008.

F.h. heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis,

Anton Helgason framkvæmdastjóri.

VIÐAUKI A
(sjá PDF-skjal)


B-deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2008

  Til baka