Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1315/2013

Nr. 1315/2013 30. desember 2013
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga, nr. 945/2009.

1. gr.

1. mgr. 3. gr. orðast svo:

Hver sá sem leggur fram meðlagsákvörðun, sbr. 2. gr., um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu, eða ákvörðun um aðrar greiðslur skv. IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, getur fengið fyrirfram greitt meðlag eða önnur framfærsluframlög frá Trygg­inga­stofnun ríkisins.

2. gr.

4. gr. orðast svo:

Fyrirframgreiðsla meðlags frá Tryggingastofnun skal nema sömu fjárhæð á mánuði og barnalífeyrir eins og hann er ákveðinn á hverjum tíma samkvæmt lögum um almanna­tryggingar. Ef um er að ræða greiðslur fyrir hluta úr mánuði skal hver dagur reiknast sem 1/30 af mánaðarlegri fjárhæð meðlags.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr.:

  1. 1. mgr. orðast svo: Upphaf greiðslna skal vera samkvæmt þeirri dagsetningu sem fram kemur í meðlagsákvörðun, sbr. þó 7. gr. um greiðslur aftur í tímann.
  2. 2. mgr. orðast svo: Meðlag skal greiða fyrirfram fyrsta dag hvers mánaðar. Greiðslur skulu að jafnaði hefjast fyrsta dag næsta mánaðar eftir að umsókn og nauðsynleg gögn hafa borist Tryggingastofnun skv. 5. gr. þessarar reglugerðar.

4. gr.

1. málsl. 8. gr. orðast svo:

Meðlagsgreiðslur falla niður frá þeim degi þegar barn verður 18 ára.

5. gr.

1. málsl. 3. mgr. 10. gr. orðast svo:

Greiðslur skv. 1. mgr. falla niður frá þeim degi þegar ungmennið nær 20 ára aldri.

6. gr.

Í stað orðanna „dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins“ í 4. mgr. 11. gr. kemur: innanríkisráðuneytisins.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 12. gr.:

  1. Í stað orðanna „frumriti ákvörðunarinnar“ í 1. málsl. kemur: ákvörðuninni.
  2. Í stað orðsins „frumrit“ í 2. málsl. kemur: ákvörðun.

8. gr.

Við 13. gr. bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Um fyrirframgreiðslu meðlags á grundvelli meðlagsákvörðunar frá öðru norrænu landi fer skv. 11. gr. Norðurlandasamnings um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu, sbr. lög nr. 66/1966.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr.:

  1. Við 2. mgr. bætist nýr málsl. sem orðast svo: Þá er stofnuninni heimilt, sam­kvæmt umsókn, að hafa milligöngu um meðlag í þeim tilvikum að staðfest er að meðlags­móttakandi telst falla áfram undir lög um almannatryggingar sam­kvæmt ákvæðum milliríkjasamninga enda séu önnur skilyrði reglugerðarinnar uppfyllt.
  2. Við bætist ný málsgrein sem orðast svo: Skilyrði er að fyrir liggi skrifleg stað­festing þar til bærra stjórnvalda þess efnis að ekki sé um fyrirframgreiðslu með­lags að ræða í búsetu- eða dvalarlandi og að meðlagsgreiðandi sé búsettur hér á landi. Um upplýsingaskyldu vegna breytinga fer skv. 15. gr.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 6. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 30. desember 2013.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2014