1. gr. Á eftir orðunum „Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í“ í 1. mgr. 17. gr. reglnanna kemur tilvísun í 4. mgr. 9. gr. Ákvæði 1. mgr. 17. gr. verði svohljóðandi: Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 4. mgr. 9. gr., 31., 32. og 33. gr. laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, öðlast þegar gildi. 2. gr. Gildistaka o.fl. Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 4. mgr. 9. gr., 31., 32. og 33. gr. laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, öðlast þegar gildi. Persónuvernd, 19. október 2010. Aðalsteinn Jónasson stjórnarformaður. Sigrún Jóhannesdóttir. |