1. gr. 61. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir: A. Til eins árs: Bæjarráð. Bæjarstjórn kýs þrjá bæjarfulltrúa og þrjá til vara í bæjarráð skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga. Eingöngu bæjarfulltrúar eru kjörgengir í bæjarráð. Kjósa skal í bæjarráð fyrst á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan árlega í júní ár hvert. Kveðið er á um verkefni bæjarráðs í 52. gr. samþykktar þessarar en auk þeirra verkefna sem þar er kveðið á um hefur bæjarráð með höndum atvinnu-, ferða-, markaðs- og kynningarmál. B. Til fjögurra ára: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara nema annað sé tekið fram í eftirfarandi ráð og nefndir sem kosin eru á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs ráðunum formann og varaformann. I. Fjármála- og stjórnsýslusvið. - Yfirkjörstjórn. Bæjarstjórn kýs á fyrsta fundi sínum þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn til fjögurra ára vegna kosninga til Alþingis, sbr. 10. gr. laga nr. 24/2000, og sveitarstjórna, sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þá kýs bæjarstjórn þrjá menn og þrjá til vara í undirkjörstjórnir sem skulu vera jafnmargar og kjördeildir í sveitarfélaginu. Heimilt er að kjósa þær síðar.
- Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga. Á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar skal kjósa tvo skoðunarmenn og jafnmarga til vara til loka kjörtímabils bæjarstjórnar. Skoðunarmenn skulu hafa kosningarrétt og kjörgengi í sveitarfélaginu. Aðal- og varamenn í bæjarstjórn og starfsmenn sveitarfélagsins eru eigi kjörgengir sem skoðunarmenn.
II. Fræðslu- og menningarsvið. - Íþrótta- og æskulýðsráð fer með íþrótta- og æskulýðsmál, samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Menningarráð, sem er þriggja manna, fer með málefni safna og húsfriðunarmál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Fræðsluráð fer með verkefni leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
III. Félagsmálasvið. - Félagsmálaráð fer með verkefni sveitarfélagsins á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, þjónustuhóp aldraðra og málefni fatlaðra samkvæmt lögum og reglugerðum og samningum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Barnaverndarnefnd fer með málefni er varða barnavernd og ættleiðingar samkvæmt lögum og reglugerðum þar um.
IV. Umhverfis- og tæknisvið. - Umhverfisráð fer með byggingarmál, skipulagsmál, brunavarnir og brunamál, almannavarnir, umferðarmál, umhverfismál, gróður- og náttúruverndarmál og veitumál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi.
- Landbúnaðarráð fer með stjórn og eftirlit með gæludýra- og búfjárhaldi, framkvæmd fjallskila, afréttarmál, hagagöngu, forðagæslu, eyðingu refa, minka og vargfugls og sjúkdómavarnir ásamt öðrum þeim verkefnum sem ráðinu eru falin með erindisbréfi. Ráðið gerir tillögu til bæjarstjórnar um ráðningu búfjáreftirlitsmanna skv. 3. gr. laga nr. 103/2002.
- Búfjáreftirlitsnefnd. Bæjarstjórn kýs að afloknum kosningum aðal- og varamann í búfjáreftirlitsnefnd 17. starfssvæðis búfjáreftirlits til fjögurra ára samkvæmt tillögu landbúnaðarráðs, sbr. reglugerð um búfjáreftirlit o.fl. nr. 743/2002.
V. Hafnastjórn fer með málefni hafna samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem stjórninni eru falin með erindisbréfi. C. Stjórnir og samstarfsráð. Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu bæjarstjórnar til að koma málum í framkvæmd innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar. - Héraðsnefnd Eyjafjarðar. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara til fjögurra ára í senn í héraðsnefnd Eyjafjarðar samkvæmt samþykktum nefndarinnar eins og þær eru hverju sinni.
- Stjórn Dalbæjar. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara til fjögurra ára í senn í stjórn Dalbæjar samkvæmt samþykktum stofnunarinnar eins og þær eru hverju sinni.
- Hússtjórn Rima. Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa sem skal vera formaður hússtjórnar og einn til vara til fjögurra ára í senn í stjórn húsfélags Rima samkvæmt aðildarsamningi að húsfélagi Rima í Svarfaðardal, dags. 7. maí 1998, og samkomulagi um breytingu á þeim samningi. Bæjarstjórn kallar eftir tilnefningum aðildarfélaga á einum fulltrúa frá hverju félagi (aðalmaður og varamaður) í stjórn húsfélagsins. Bæjarstjórn setur hússtjórninni erindisbréf í samræmi við störf stjórnar sem fram koma í aðildarsamningi að húsfélagi Rima.
D. Tilnefningar og kosningar. Fulltrúar eru kosnir á ársþing og ársfundi stofnana sem sveitarfélagið á aðild að. Kosning skal fara fram á fyrsta og/eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan í júní ár hvert vegna þeirra tilnefninga sem gilda í eitt ár. - Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum um Samband íslenskra sveitarfélaga kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sambandsins. Fulltrúar bæjarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
- Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Bæjarstjórn kýs einn aðalfulltrúa og einn til vara í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Fulltrúi sveitarfélagsins er kosinn á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hans hið sama og bæjarstjórnar.
- Eyþing. Bæjarstjórn kýs þrjá aðalfulltrúa og jafnmarga til vara á aðalfund Eyþings samkvæmt samþykktum þess hverju sinni. Fulltrúar sveitarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
E. Verkefnabundnar nefndir. Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda stendur til loka kjörtímabils eða þar til verkefni hennar er lokið. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Bæjarstjórn útbýr erindisbréf fyrir nefndirnar þar sem hlutverk og staða þeirra er skilgreind. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 64. gr. samþykktarinnar: a) | 1. tölul. 1. mgr. greinarinnar verður svohljóðandi: | | Fjármála- og stjórnsýslustjóra sem er skrifstofustjóri bæjarskrifstofu og yfirmaður fjármála- og stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins. Hann er einnig ritari bæjarstjórnar. | b) | 2. tölul. 1. mgr. greinarinnar verður svohljóðandi: | | Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs sem er yfirmaður fræðslu- og menningarsviðs, sbr. I. lið, B-liðar 61. gr. |
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. gr. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 27. maí 2008. F. h. r. Ragnhildur Hjaltadóttir. Stefanía Traustadóttir. |