1. gr. Við 4. málsl. 20. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi: né lægri en 3,5% ef vextir bréfanna eru hærri en 3,5% á uppgjörsdegi eða lægri en vextir bréfanna eru á uppgjörsdegi ef vextir þeirra eru þá 3,5% eða lægri. 2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 9. nóvember 2006. F. h. r. Baldur Guðlaugsson. Ingvi Már Pálsson. |