1. gr. Tímagjald lögreglumanna samkvæmt a-lið 3. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 587/1987 skal vera 3.397 krónur. Grundvöllur gjaldsins er eftirfarandi: | Laun pr. klst. skv. launatöflu lögreglumanna 1. maí 2006: | | kr. | | Launaflokkur 10-5 | | 2.329 | | Álag 20% | | 466 | | | | 2.795 | | Launatengd gjöld 21,53% | | 602 | | | | 3.397 |
2. gr. Dagpeningar lögreglumanna samkvæmt b-lið 3. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 587/1987 skulu ákvarðast í samræmi við auglýsingu ferðarkostnaðarnefndar fjármálaráðuneytisins sem gildir á þeim tíma sem löggæslukostnaður er ákvarðaður. 3. gr. Aksturskostnaður lögreglumanna samkvæmt c-lið 3. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 587/1987 skal ákvarðast í samræmi við gjald sem ákveðið er í auglýsingu ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytisins sem gildir á þeim tíma sem löggæslukostnaður er ákvarðaður. 4. gr. Kostnað vegna uppsetningar nauðsynlegs tækjabúnaðar og aðstöðu samkvæmt d- og e-lið 3. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 587/1987 skal leyfishafi greiða í samræmi við útlagðan kostnað lögreglu studdan reikningum. 5. gr. Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 5. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 587/1987 um löggæslu á skemmtunum og um slit á skemmtunum og öðrum samkvæmum, sbr. 1. mgr. 34. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, öðlast þegar gildi. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 11. júlí 2006. Björn Bjarnason. Ragna Árnadóttir. |