1. gr. Byggingarfulltrúi Vopnafjarðarhrepps fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa. 2. gr. Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að skipulags- og byggingarnefnd Vopnafjarðarhrepps hafi samþykkt útgáfuna, en nefndin annast verkefni byggingarnefndar, sbr. 7. gr. laga um mannvirki og samþykkt nr. 420/2014 um stjórn Vopnafjarðarhrepps. 3. gr. Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við skipulags- og byggingarnefnd Vopnafjarðarhrepps um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið nefndarinnar. Byggingarfulltrúi skal leita samþykkis skipulags- og byggingarnefndar Vopnafjarðarhrepps áður en byggingarleyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form, nema breyting sé óveruleg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki. 4. gr. Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga, nr. 123/2010, stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og samþykktar nr. 420/2014 um stjórn Vopnafjarðarhrepps, eftir því sem við á. 5. gr. Samþykkt þessi sem hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. maí 2014. F. h. r. Steinunn Fjóla Sigurðardóttir. Hafsteinn Pálsson. |