Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 298/2010

Nr. 298/2010 23. mars 2010
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 119/2009.

1. gr.

Í stað 16. málsl. 2. gr. komi nýr málsliður sem hljóði svo:

Viðskiptabann tekur til innflutningsbanns, útflutningsbanns og sölubanns á hlutum og þjónustu.

2. gr.

Í stað a-liðar 1. mgr. 5. gr. komi nýr stafliður sem hljóði svo:

a)

sölu, útvegun, flutning eða útflutning á hergögnum sem eru:

ekki lífshættuleg og eingöngu eru ætluð í mannúðar- eða verndarskyni,

á vegum Sameinuðu þjóðanna, friðargæslusveita þeirra eða hafa verið heimiluð af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,

á vegum íslenskra stjórnvalda eða annarra aðildarríkja Atlantshafs­bandalagsins,

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008.

4. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 23. mars 2010.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 9. apríl 2010