1. gr. Reglugerð þessi gildir um veitingu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði til atvinnuleitenda sem eiga rétt á atvinnuleysisbótum á grundvelli 17. eða 22. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, og fengu greiddar atvinnuleysisbætur 1. júlí 2011 á grundvelli ákvæða til bráðabirgða V eða VI við lögin. 2. gr. Styrkurinn skal nema mismun greiddra atvinnuleysisbóta á grundvelli 17. eða 22. gr. laganna um atvinnuleysistryggingar og þeirra atvinnuleysisbóta sem atvinnuleitandi hefði ella átt rétt á samkvæmt 17. eða 22. gr. laganna og ákvæðum til bráðabirgða V eða VI við lögin er féllu úr gildi 30. júní 2011. Auk þess skal greitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur 8% af styrkfjárhæð til hlutaðeigandi lífeyrissjóðs atvinnuleitanda. Þessi styrkur skal greiddur samhliða atvinnuleysisbótum atvinnuleitanda á grundvelli 17. eða 22. gr. laganna. Styrkur skv. 1. mgr. skal greiddur út 1. ágúst 2011. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 63. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 26. júlí 2011. Guðbjartur Hannesson. Anna Lilja Gunnarsdóttir. |