1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XIV. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 51/2015 frá 21. mars 2015 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1257/2014 frá 24. nóvember 2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2003/2003 um áburð í því skyni að aðlaga I. og IV. viðauka. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 23. apríl 2015, bls. 283. 2. gr. Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna áburðareftirlits sé framfylgt í samræmi við 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. 3. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. 4. gr. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2015. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson. |