1. gr. Heiti reglnanna, sem settar voru 18. maí 2010, breytist og verður: Reglur um Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands. 2. gr. Yfirskrift 8. gr. breytist og verður: Forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra og aðrir starfsmenn. 3. gr. Yfirskrift 9. gr. breytist og verður: Forstöðumenn rannsóknasetra. 4. gr. Orðin „Stofnun fræðasetra“ í 1. mgr. 1. gr., 3. mgr. 8. gr., 1. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 11. gr. breytast og verða (í viðeigandi beygingarfalli): Stofnun rannsóknasetra. 5. gr. Orðin „rannsókna- og fræðasetur“ í 1. og 2. mgr. 3. gr., 5. mgr. 7. gr., 2. mgr. 8. gr., 1. og 2. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 11. gr. breytast og verða (í viðeigandi beygingarfalli): rannsóknasetur. 6. gr. Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 12. maí 2011. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |