1. gr. Síðari málsl. 1. mgr. 5. gr. samþykktarinnar fellur niður. Jafnframt fellur orðið „Aðra“ brott í upphafi 2. mgr. 5. gr. 2. gr. Í stað „menntamálaráðs“ í 3. tölul. 2. mgr. 8. gr. samþykktarinnar kemur: menntaráðs. Í stað „stjórnar eignasjóðs“ kemur: framkvæmda- og eignaráðs. 3. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytisins“ í 1. mgr. 11. gr. samþykktarinnar kemur: samgönguráðuneytisins. 4. gr. Síðari málsl. 3. mgr. 15. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Fundargerð eða hluti hennar skal þó lesin upp í fundarlok ef forseti ákveður, borgastjóri óskar eða fjórir borgarfulltrúar hið fæsta, og skulu þá allir viðstaddir undirrita hana. 5. gr. Síðari málsl. 1. mgr. 49. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Borgarfulltrúar eru einir kjörgengir sem aðalmenn í borgarráð, en kjörgengir varamenn í borgarráð eru þeir sem skipa sæti á framboðslista sem fulltrúa hefur fengið í borgarstjórn við síðustu borgarstjórnarkosningar. 6. gr. Úr B-lið 61. gr. samþykktarinnar fellur 7. tölul. en við bætist nýr 1. tölul. svohljóðandi: Sjö menn í framkvæmda- og eignaráð og sjö til vara. Formannskjör. Númer annarra tölul. B-liðar sem aftar standa breytast til samræmis. 7. gr. 5. tölul. B-liðar 62. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Fimm menn í hvert hverfisráð og fimm til vara. Formannskjör. 8. gr. Fyrri málsl. 2. mgr. 68. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Skrifstofustjóri borgarstjórnar gegnir störfum borgarstjóra í fjarveru hans og öðrum forföllum, en borgarlögmaður í fjarveru skrifstofustjóra borgarstjórnar. 9. gr. Viðaukar 1.2 og 2.4 með samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 12/2007 falla niður. Númeraröð annarra viðauka sem aftar standa breytist í samræmi við það. Samþykkt þessi sem borgarstjórn hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 9. september 2009. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |