1. gr. Innleiðing. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 60/2009, frá 30. maí 2009, öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi: - Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1881/2006 um hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1126/2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1881/2006 hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum að því er varðar eiturefni sveppa af ættkvíslinni Fusarium í maís og maísafurðum.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 629/2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1881/2006 hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum.
2. gr. Fylgiskjöl. Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr eru birtar sem fylgiskjöl I-III við reglugerð þessa. 3. gr. Breytingar á 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1881/2006. Eftirfarandi málsgrein bætist við 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1881/2006: Að því er varðar hámarksgildi fyrir díoxín og díoxínlík PCB í olíu úr sjávardýrum er stjórnvöldum á Íslandi og í Noregi heimilt að viðhalda hámarksgildi fyrir díoxín, fúrön og díoxínlík PCB (WHO-PCDD/F-PCB-TEQ) sem er 5 pg á hvert gramm fitu. 4. gr. Eftirlit. Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. 5. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög. Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. 6. gr. Brottfall reglugerða. Við gildistöku reglugerðar þessarar falla úr gildi eftirfarandi reglugerðir: - Reglugerð nr. 502/2003 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 661/2003 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 662/2003 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 439/2005 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 555/2006 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 237/2007 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 1289/2007 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 1307/2007 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 697/2008 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
- Reglugerð nr. 790/2008 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
7. gr. Lagastoð. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. 8. gr. Gildistaka. Reglugerðin tekur þegar gildi. Þó taka efnisákvæði reglugerða framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. ekki til frumframleiðslu á kjöti, mjólk og eggjum fyrr en 1. nóvember 2011. Um hugtakið „frumframleiðslu“ gildir skilgreining 4. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. mars 2010. Jón Bjarnason. Baldur P. Erlingsson. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal) |