Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 361/2015

Nr. 361/2015 1. apríl 2015
REGLUGERÐ
um samræmda eftirlitsáætlun fyrir árin 2015, 2016 og 2017 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2015, frá 26. febrúar 2015, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 400/2014 frá 22. apríl 2014 um samræmda eftirlitsáætlun Sambandsins til margra ára fyrir árin 2015, 2016 og 2017 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 234.

2. gr.

Við 5. tölulið II. viðauka framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 400/2014 bætist eftirfarandi:

  IS

  12(1)
  15(2)

  NO

  12(1)
  15(2)

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð 1137/2013 um samræmda eftirlitsáætlun fyrir árin 2013, 2014 og 2015 vegna hámarksgilda varnar­efna­leifa og mats á þeim váhrifum sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu, með síðari breytingum. Þó skulu ákvæði reglugerðar­innar, sem varða sýni sem prófuð voru árin 2013 og 2014, halda gildi sínu.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. apríl 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 17. apríl 2015