Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 299/2010

Nr. 299/2010 23. mars 2010
REGLUGERÐ
um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 733 (1992), 1356 (2001), 1425 (2002), 1725 (2006), 1744 (2007), 1772 (2007), 1844 (2008), 1846 (2008), 1851 (2008) og 1907 (2009) og ákvörðunum framkvæmdanefndarinnar um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu, sbr. ályktun öryggisráðsins nr. 751 (1992), 4. mgr. ályktunar nr. 1356 (2001), 11. mgr. ályktunar nr. 1844 (2008) og 18. mgr. ályktunar nr. 1907 (2009).

Ákvarðanir framkvæmdanefndarinnar, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunaraðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri hennar (http://www.un.org/sc/committees/751/index.shtml).

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr.

Vopnasölubann.

Vopnasölubann skal gilda gagnvart Sómalíu, sbr. 5. mgr. ályktunar öryggisráðsins nr. 733 (1992), 2. og 3. mgr. ályktunar nr. 1356 (2001), 1. og 2. mgr. ályktunar nr. 1425 (2002), 5. mgr. ályktunar nr. 1725 (2006), 6. mgr. ályktunar nr. 1744 (2007), 11. mgr. ályktunar nr. 1772 (2007), 6.-9. mgr. ályktunar nr. 1844 (2008), 12. mgr. ályktunar nr. 1846 (2008), 11. mgr. ályktunar nr. 1851 (2008) og 1. mgr. ályktunar nr. 1907 (2009).

3. gr.

Skoðunarskylda.

Nú hefur loftfar eða skip viðkomu á Íslandi með farm, sem er á leið til eða frá Sómalíu, og er þá bærum stjórnvöldum heimilt að skoða farminn, enda sé gild ástæða til að ætla að loftfarið eða skipið flytji hluti sem bann er lagt við samkvæmt reglugerð þessari, sbr. 7. mgr. ályktunar nr. 1907 (2009).

Nú kemur í ljós að loftfar eða skip flytur hluti, sem bann er lagt við samkvæmt 1. mgr., og er þá heimilt að gera þá hluti upptæka og eyðileggja þá eða gera ónothæfa, sbr. 8. mgr. ályktunar nr. 1907 (2009).

4. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til á grundvelli ályktana öryggisráðsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum.

5. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

6. gr.

Heimild.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

7. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 121/2009.

Utanríkisráðuneytinu, 23. mars 2010.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 9. apríl 2010