FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 1. gr. 1. mgr. 13. gr. laganna orðast svo: Starfsemi samkvæmt lögum þessum skal háð reglulegu opinberu eftirliti af hálfu Matvælastofnunar. Umfang og tíðni eftirlits skal byggt á áhættuflokkun. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 29. janúar 2014. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Sigurður Ingi Jóhannsson. |