Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 548/2010

Nr. 548/2010 15. júní 2010
REGLUR
um Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands.

1. gr.

Almennt.

Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands.

Stofnunin heyrir undir viðskiptafræðideild á félagsvísindasviði og er vettvangur rann­sókna- og þróunarstarfs í viðskiptafræðum og skyldum greinum.

2. gr.

Hlutverk.

Hlutverk Viðskiptafræðistofnunar er:

  1. að efla tengsl rannsókna og kennslu og samhæfa rannsóknir í viðskiptafræðum og skyldum greinum sem unnið er að við Háskóla Íslands,
  2. að styðja kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og veita nemendum í framhaldsnámi aðstöðu og búnað til rannsóknarstarfa eftir því sem kostur er,
  3. að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði viðskiptafræða og sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf,
  4. að sinna þjónustuverkefnum á sviði viðskiptafræða,
  5. að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í viðskiptafræðum og skyldum greinum,
  6. að veita fræðslu og ráðgjöf varðandi viðskiptafræði,
  7. að gangast fyrir námskeiðum og fyrirlestrum í viðskiptafræði.

3. gr.

Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.

Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 7. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

4. gr.

Stjórn.

Forseti félagsvísindasviðs skipar Viðskiptafræðistofnun fimm manna stjórn til þriggja ára í senn að fenginni tilnefningu deildarfundar viðskiptafræðideildar. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall hvors kyns sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Stjórnin kýs úr sínum hópi formann og varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Ef ekki er ráðinn forstöðumaður til stofnunarinnar kemur formaður stjórnar fram fyrir hönd stofnunarinnar.

5. gr.

Stjórnarfundir.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrir­vara. Fundarboð skal greina frá dagskrá fundar.

Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti viðskiptafræðideildar, forseti félagsvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum.

Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formanns­störfum.

Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundar­gerða skulu send forseta viðskiptafræðideildar.

Forstöðumaður situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.

6. gr.

Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfs­reglur. Enn fremur gerir stjórn tillögu til deildar um langtímastefnu í rannsóknum. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.

Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum hennar gagnvart deild og forseta fræðasviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar um fjárveitingar og skiptingu þeirra ásamt skiptingu annarra tekna.

Stjórnin gerir tillögu að samþykktum um þjónusturannsóknir sem háskólaráð staðfestir.

Stjórnin efnir til ársfundar með starfsmönnum Viðskiptafræðistofnunar þar sem ársskýrsla er lögð fram og fjárhagsáætlun næsta árs ef því er að skipta. Ársfundur er jafnframt vettvangur umræðu um rekstur og starfsemi Viðskiptafræðistofnunar, nýjungar í viðskiptafræði og skyldum greinum og rannsóknastefnu. Ársfund skal að jafnaði halda á haustmánuðum.

7. gr.

Forstöðumaður og starfsmenn.

Forseti félagsvísindasviðs ræður stofnuninni forstöðumann að fenginni tillögu stjórnar og með samþykki deildar. Forseti fræðasviðs setur forstöðumanni erindisbréf.

Forstöðumaður annast daglegan rekstur stofnunarinnar og sér um framkvæmd á þeim málum, sem stjórnin felur honum.

Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í regl­unum fer stjórn stofnunarinnar eða forstöðumaður í umboði hennar með ráðningar­málið.

8. gr.

Fjármál.

Tekjur Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands eru eftirfarandi:

  1. framlag frá viðskiptafræðideild,
  2. styrkir til einstakra verkefna,
  3. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
  4. tekjur af útgáfustarfsemi,
  5. aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlag úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Fjárhagsáætlun skal kynnt og lögð fram til samþykktar á deildarfundi og samþykkt af forseta félags­vísindasviðs.

Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starf­semi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnis­laga.

Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands.

9. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu viðskiptafræðideildar og stjórnar félagsvísindasviðs, öðlast þegar gildi.

Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 824/2001 um Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands, með síðari breytingum, sbr. reglur nr. 489/2007 og 806/2008.

Háskóla Íslands, 15. júní 2010.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 2. júlí 2010