Skipulagsstofnun staðfesti þann 6. júlí 2011 breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015, dreifbýlishluta, sem samþykkt var í bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar 14. júní 2011. Niðurstaða sveitarstjórnar var birt 23. júní 2011. Breytingin tekur til stækkunar frístundabyggðarsvæðisins F3 í landi Mýrarhúsa, Króks, Láar og Lárkots úr 26 ha í 32,5 ha. Gert er ráð fyrir allt að 16 húsum á öllu svæðinu í stað 8 húsa samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi. Skipulagsstofnun, 6. júlí 2011. Stefán Thors. Erna Hrönn Geirsdóttir. |