Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 96/2012

Nr. 96/2012 18. janúar 2012
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 844/2001, um Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.

1. gr.

4. gr. breytist og orðast svo:

Háskólaráð skipar stofnuninni sex manna stjórn, og jafnmarga til vara. Rektor skipar formann án tilnefningar, en aðrir fulltrúar eru skipaðir eftir tilnefningu fræðasviða háskólans. Stjórnin er skipuð til þriggja ára í senn og skiptir að öðru leyti með sér verkum.

2. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði skv. heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 18. janúar 2012.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 2. febrúar 2012