1. gr. Lögbært yfirvald. Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds, sbr. 34. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009, um snyrtivörur. 2. gr. Upplýsingar til eitrunarmiðstöðvar. Eitrunarmiðstöð Landspítala háskólasjúkrahúss skal taka við upplýsingum um tilkynntar snyrtivörur í samræmi við 6. mgr. 13. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009. 3. gr. Merkingar. Merkingar á umbúðum snyrtivara, sbr. 19. gr. reglugerðar (EB) nr. 1223/2009, skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku. Viðvörunarmerkingar skv. dálki i í III. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 skulu vera á íslensku. Þó er heimilt að viðvörunarmerkingar vegna flúorinnihalds í tannkremi séu á ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku. Ennfremur er heimilt að viðvörunarmerkingar vegna snytivara séu á ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku ef merkingin er eingöngu ætluð til að taka fram að snyrtivaran innihaldi tiltekið innihaldsefni. 4. gr. Framleiðsla. Fyrirtæki sem framleiðir snyrtivörur skal hafa starfsleyfi í gildi frá viðkomandi heilbrigðisnefnd, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. 5. gr. Eftirlit. Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla efnalaga nr. 61/2013, sbr. og 2. tölul. 5. gr. og 2. tölul. 6. gr. 6. gr. Viðurlög. Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt XIV. kafla efnalaga nr. 61/2013. 7. gr. Innleiðing EES-gerða. Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins frá 30. nóvember 2009 nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1, XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2013, þann 5. apríl 2013 öðlast gildi hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 28. mars 2013, bls. 524 til 674. 8. gr. Lagastoð og gildistaka. Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast gildi 11. júlí 2013. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 748/2003 um snyrtivörur. Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 18. júní 2013. Sigurður Ingi Jóhannsson. Sigríður Auður Arnardóttir. |