Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 289/2015

Nr. 289/2015 13. mars 2015
REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð nr. 135/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2073/2005 um örverufræðilegar viðmiðanir fyrir matvæli, með áorðnum breytingum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2014, frá 27. nóvember 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 209/2013 frá 11. mars 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2073/2005 að því er varðar örverufræðilegar við­miðanir fyrir spírur og reglur um töku sýna úr alifuglaskrokkum og nýju alifuglakjöti. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 34.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. mars 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 27. mars 2015