1. gr. 4. mgr. 4. gr. orðast svo: Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs í lífeindafræði takmarkast við töluna 30. 2. gr. Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands að fenginni tillögu stjórnar heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar taka þegar gildi og gilda fyrir háskólaárið 2009-2010. Háskóla Íslands, 16. nóvember 2009. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |