I. KAFLI Um skipan sveitarstjórnar og verkefni hennar. 1. gr. Skipan sveitarstjórnar. Sveitarstjórn Kjósarhrepps er skipuð fimm sveitarstjórnarmönnum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 2. gr. Starfstímabil sveitarstjórnar. Starfstímabil sveitarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og stendur til jafnlengdar að fjórum árum liðnum. 3. gr. Valdsvið. Sveitarstjórn fer með stjórn Kjósarhrepps samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer sveitarstjórnin með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn. 4. gr. Skyldur sveitarstjórnar. Sveitarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess. 5. gr. Verkefni sveitarstjórnar. Sveitarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum. 6. gr. Helstu verkefni. Meðal verkefna sveitarstjórnar Kjósarhrepps er: - Að kjósa oddvita, varaoddvita og ritara sveitarstjórnar og aðrar nefndir og stjórnir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
- Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga og VI. kafla samþykktar þessarar.
- Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöðu hjá sveitarfélaginu.
II. KAFLI Um fundarsköp sveitarstjórnarinnar. 7. gr. Fundartími sveitarstjórnar. Sveitarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í hverjum mánuði og ákveður hvenær þeir skuli haldnir og ber að auglýsa fundartíma. Heimilt er að fella niður fundi í sveitarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Aukafundi skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og framkvæmdastjóra sveitarfélagsins og skylt er að halda aukafund í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni. 8. gr. Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar. Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr. 9. gr. Boðun sveitarstjórnarfunda. Framkvæmdastjóri sveitarfélagsins, sbr. þó 8. gr., boðar sveitarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi sveitarstjórnin ekki gert það. 10. gr. Auglýsing sveitarstjórnarfunda. Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórnin ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi, auglýsingu í staðbundnu fréttablaði eða á heimasíðu sveitarfélagsins. 11. gr. Dagskrá sveitarstjórnarfunda. Framkvæmdastjóri sveitarfélagsins semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði. Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka: - Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningu framkvæmdastjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og framkvæmdastjóri og/eða oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarmaður óskar að tekin verði á dagskrá. Sveitarstjórnarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það framkvæmdastjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá sveitarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta sveitarstjórnarfundar. 12. gr. Fundarboð. Framkvæmdastjóri sveitarfélagsins skal hafa sent sveitarstjórnarmönnum fundarboð sveitarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund. 13. gr. Auglýsing dagskrár sveitarstjórnarfundar. Dagskrá sveitarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á heimasíðu sveitarfélagsins, auglýsingatöflu sveitarfélagsins, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem sveitarstjórnin ákveður. 14. gr. Boðun aukafunda. Framkvæmdastjóri sveitarfélagsins skal senda sveitarstjórnarmönnum fundarboð aukafundar í sveitarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. 15. gr. Kosning oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar. Sá sveitarstjórnarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar og stýrir honum uns forseti hefur verið kjörinn. Oddviti sveitarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni skal hann víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný. Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri sveitarstjórnarmenn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sem fleiri atkvæði fær þótt hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu. Oddviti stjórnar kjöri varaoddvita sveitarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varafoddvitar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og oddviti. Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til ráðuneytis sveitarstjórna þegar að því loknu. Sé enginn oddviti á fundi gegnir aldursforseti störfum oddvita nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra. Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita. 16. gr. Kosning skrifara. Sveitarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi sveitarstjórnarmanna til eins árs í senn á sama fundi og kosning oddvita fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórninni. 17. gr. Fundarstaður. Sveitarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Sveitarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks. Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur sveitarstjórnin ákveðið að sveitarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í sveitarstjórn. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitarstjórn. 18. gr. Lögmæti sveitarstjórnarfunda. Sveitarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur sveitarstjórnarmanna er mættur á fundinn og getur sveitarstjórnin enga bindandi ályktun gert nema sveitarstjórnarfundur sé lögmætur. 19. gr. Fundarstjórn. Oddviti sveitarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók sveitarstjórnarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar. Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á sveitarstjórnarfundum og er sveitarstjórnarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitarstjórnarfundum. 20. gr. Afgreiðsla dagskrármála á fundi. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í sveitarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema oddviti eða sveitarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á sveitarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði. 21. gr. Afgreiðsla mála, tvær umræður. Sveitarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni: - Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
- Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
- Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
- Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
- Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
22. gr. Fundarsókn, varamenn. Sveitarstjórnarmanni er skylt að sækja alla sveitarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé sveitarstjórnarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til framkvæmdastjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Framkvæmdastjóri sveitarfélagsins skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn. Sveitarstjórn getur heimilað einstaklingi utan sveitarstjórnar að taka til máls á sveitarstjórnarfundi. 23. gr. Vanhæfi sveitarstjórnarmanns. Sveitarstjórnarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf. Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar sveitarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins. Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli sveitarstjórnar á því. Sveitarstjórnarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver sveitarstjórnarmanna sé vanhæfur. Sveitarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. 24. gr. Málfrelsi fundarmanna. Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á sveitarstjórnarfundum. Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu sveitarstjórnarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða framkvæmdastjóra sveitarfélags, framsögumann í máli eða sveitarstjórnarmann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri sveitarstjórnarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala. 25. gr. Vítur á sveitarstjórnarmann. Beri sveitarstjórnarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarmaður sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist sveitarstjórnarmaður ekki úrskurði oddvita eða sveitarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur. 26. gr. Takmarkanir á ræðutíma. Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar. 27. gr. Meðferð tillagna. Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu. 28. gr. Afgreiðsla mála. Mál er afgreitt í sveitarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá sveitarstjórn eða vísa því til afgreiðslu annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða framkvæmdastjóra. Máli sem sveitarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Sveitarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma. 29. gr. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei, eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar. 30. gr. Úrslit atkvæðagreiðslu. Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör. 31. gr. Fundargerð. Sveitarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan sveitarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók sveitarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir sveitarstjórnarmenn undirrita hana nema sveitarstjórn ákveði annað. Sveitarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók sveitarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir sveitarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af sveitarstjórnarmönnum. Einnig skal forseti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu. Sveitarstjórnarmaður sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Sveitarstjórn getur ákveðið að umræður á sveitarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal sveitarstjórn setja um það nánari reglur. III. KAFLI Um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna. 32. gr. Fundarseta. Sveitarstjórnarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Hver sveitarstjórnarmaður er skyldur til að taka að sér þau störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar, svo sem oddvitastörf. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í byggðarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. 33. gr. Skyldur sveitarstjórnarmanna Sveitarstjórnarmanni ber að gegna störfum sínum í sveitarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins en í störfum sínum er sveitarstjórnarmaður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni. 34. gr. Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur. Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Sveitarstjórnarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem sveitarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur sveitarstjórnarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni. Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar enda tilkynni hann það sveitarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund. 35. gr. Aðgangur að upplýsingum. Sveitarstjórnarmaður hefur aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. 36. gr. Bókanir. Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn. 37. gr. Þagnarskylda. Sveitarstjórnarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að sveitarstjórnarmaður lætur af þeim störfum. 38. gr. Lausn úr sveitarstjórn. Nú telur sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórninni án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Missi sveitarstjórnarmaður kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Nú er sveitarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal sveitarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir. 39. gr. Þóknun. Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundarstaðar sveitarstjórnar, getur sveitarstjórnin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar. Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr. 40. gr. Orlof sveitarstjórnarmanna. Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að sveitarstjórnarmenn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega. 41. gr. Varamenn. Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna gilda einnig um varamenn sem taka sæti í sveitarstjórninni. IV. KAFLI Nefndir, ráð og stjórnir. 42. gr. Boðun fyrsta fundar nefnda. Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða sveitarstjórnin ákveði annað. Oddviti sveitarstjórnar boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af sveitarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara. 43. gr. Fundarseta í nefndum. Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema sveitarstjórnin ákveði að kjósa aðalmann að nýju. Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. 44. gr. Lokaðir nefndafundir. Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Ennfremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál. 45. gr. Stjórn nefndafunda. Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. 46. gr. Hlutverk og valdsvið nefnda. Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar. Sveitarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn. 47. gr. Fundargerðabækur. Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 31. gr. 48. gr. Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu teknar á dagskrá sveitarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar byggðarráðsins og/eða sveitarstjórnarinnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar byggðarráðsins og/eða sveitarstjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir byggðarráðið og/eða sveitarstjórnina. 49. gr. Nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar. Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir: A. Fulltrúar í fastanefndir kjörnir út kjörtímabilið á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: - Atvinnu- og ferðamálanefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í atvinnu- og ferðamálanefnd. Nefndin fer með atvinnu-, markaðs- og kynningarmál sveitarfélagsins samkvæmt samþykkt sveitarfélagsins þar um.
- Félagsmála- og jafnréttisnefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í félagsmála- og jafnréttisnefnd, sbr. lög nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Nefndin fer með jafnréttismál samkvæmt lögum nr. 8/2008. Félagsmálanefnd hefur umsjón með framkvæmd laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra og málefni aldraðra samkvæmt lögum nr. 125/1999. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett.
- Fræðslu- og menningarmálanefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í fræðslu- og menningarmálanefnd. Nefndin fer með málefni leikskóla samkvæmt lögum nr. 90/2008, grunnskóla samkvæmt lögum nr 91/2008, tónlistarskóla samkvæmt lögum nr. 75/1985. Einnig með æskulýðsmál skv. lögum nr. 24/1970 um æskulýðsmál og menningarmál sveitarfélagsins samkvæmt samþykktum þar um. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett.
- Skipulags- og byggingarnefnd. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara í skipulags- og byggingarnefnd. Skipulags- og byggingarnefnd fer með skipulags- og byggingarmál samkvæmt lögum nr. 73/1997 og reglugerðum nr. 400/1998 og nr. 441/1998 Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett.
- Samgöngu- og fjarskiptanefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í samgöngu- og fjarskiptanefnd. Nefndin fer með umferðarmál samkvæmt lögum nr. 50/1987 og fjarskiptamál. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett.
- Orkunefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í orkunefnd. Nefndin fer með veitumál samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða um vatns- og hitaveitur. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett.
- Umhverfis-, náttúru- og landbúnaðarnefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í umhverfis-, náttúru- og landbúnaðarnefnd. Nefndin fer með umhverfis- og náttúruverndarmál samkvæmt náttúruverndarlögum nr. 44/1999 og landbúnaðarmálefni, sbr. lög nr. 103/2002 og lög nr. 64/1994. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett.
- Rit- og útgáfunefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í rit- og útgáfunefnd. Hlutverk nefndarinnar er að hafa umsjón með útgáfu á riti sem inniheldur sögu Kjósarinnar.
- Kjörstjórn. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í kjörstjórn. Kjörstjórn fer með þau verkefni sem henni eru falin samkvæmt ákvæðum laga nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna og laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis.
- Starfskjaranefnd. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í starfskjaranefnd. Starfskjaranefnd fer með verkefni samkvæmt samkomulagi og gerir tillögur til sveitarstjórnar um starfskjör starfsmanna sveitarfélagsins.
- Skoðunarmenn sveitarsjóðsreikninga. Tveir skoðunarmenn og jafnmargir til vara samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998.
- Húsnefnd Félagsgarðs. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara í húsnefnd fyrir félagsheimilið Félagsgarð, ásamt einum fulltrúa og öðrum til vara frá UMF Dreng. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd hefur umsjón með fasteigninni Félagsgarði.
B. Aðrir fulltrúar kjörnir til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu sveitarstjórnar til að koma málum í framkvæmd, innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar. - Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara í almannavarnanefnd. Fulltrúi sveitarfélagsins er kosinn á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hans hið sama og sveitarstjórnar.
- Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis. Einn fulltrúi og einn til vara í heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis.
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn fulltrúi og einn til vara á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samkvæmt lögum sambandsins.
- Vöktunarnefnd Grundartanga. Einn fulltrúi og einn til vara í vöktunarnefnd Grundartanga.
- Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Tveir fulltrúar og tveir til vara í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.
- Fulltrúaráð SSH. Tveir fulltrúar í fulltrúaráð Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
- Stjórn SSH. Einn fulltrúi, framkvæmdastjóri Kjósarhrepps, situr í stjórn Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
- Sameiginlegt búfjáreftirlit Kjósarsvæðis. Einn fulltrúi og einn til vara í sameiginlegu búfjáreftirliti Kjósarhrepps, Reykjavíkur og Seltjarnarness.
- Þjónustuhópur aldraðra. Einn fulltrúi og einn til vara í þjónustuhóp aldraðra.
50. gr. Verkefnabundnar nefndir. Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Sveitarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. V. KAFLI Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins 51. gr. Ráðning framkvæmdastjóra. Sveitarstjórn getur ráðið framkvæmdastjóra sveitarfélagsins. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af sveitarstjórn. 52. gr. Oddviti. Ef ekki er ráðinn sérstakur framkvæmdastjóri sveitarfélagsins hefur oddviti með höndum daglega stjórn sveitarfélagsins, undirbýr fundi sveitarstjórnar, annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og annarra málefna sveitarfélagsins, svo sem bréfaskipti, gjaldheimtu og reikningshald. Laun oddvita þar sem ekki er starfandi framkvæmdastjóri skulu ákveðin sérstaklega af sveitarstjórninni. Skulu launin endurskoðuð reglulega í samræmi við almennar launabreytingar í landinu. Ef um er að ræða sérstakar, umfangsmiklar og tímabundnar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem oddviti sér um, á hann rétt á sérstakri þóknun fyrir þau störf samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar. Láti oddviti í té húsnæði og aðra aðstöðu vegna skrifstofuhalds og fundahalda í þágu sveitarfélagsins á hann rétt á sérstakri greiðslu fyrir þá þjónustu. 53. gr. Hlutverk framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri undirbýr fundi sveitarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum sveitarstjórnarinnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórnina. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum. Framkvæmdastjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og málefna sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórnin hefur ekki ákveðið annað. Framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Framkvæmdastjóra er heimilt með samþykki sveitarstjórnarinnar að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru. Framkvæmdastjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins. 54. gr. Ráðning starfsmanna. Sveitarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, svo sem yfirmenn stofnana og deilda sveitarfélagsins og veitir þeim lausn frá störfum. 55. gr. Ráðning fastra starfsmanna. Framkvæmdastjóri ræður aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 54. gr. 56. gr. Lausráðnir starfsmenn. Framkvæmdastjóri sér um ráðningu lausráðinna starfsmanna. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og/eða ákvæðum ráðningarsamninga. 57. gr. Starfskjör. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga. VI. KAFLI Um fjármálastjórn sveitarfélagsins. 58. gr. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar. Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal sveitarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins fyrir komandi ár að undangengnum tveimur umræðum í sveitarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til ráðuneytis sveitarstjórna og tilgreina ástæður fyrir umsókninni. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur sveitarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs á yfirstandandi fjárhagsári. Sveitarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld fari ekki fram úr heildartekjum þess. 59. gr. Fjárhagsáætlun. Fjárhagsáætlun skv. 58. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af sveitarstjórninni. Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni. 60. gr. Endurskoðun fjárhagsáætlunar. Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er sveitarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir sveitarstjórn við eina umræðu á sveitarstjórnarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum sveitarstjórnarmönnum með dagskrá viðkomandi sveitarstjórnarfundar. 61. gr. Þriggja ára áætlun. Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal sveitarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar. 62. gr. Áætlun send ráðuneyti sveitarstjórna. Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnarinnar skal senda ráðuneyti sveitarstjórna fjárhagsáætlun skv. 58. gr. og þriggja ára áætlun skv. 61. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 60. gr. 63. gr. Afgreiðsla ársreikninga. Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar. Sveitarstjórnin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna. Sveitarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Sveitarstjórnarmenn og framkvæmdastjóri skulu árita ársreikninginn. Eintak af ársreikningnum skal senda ráðuneyti sveitarstjórna og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Kjósarhrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 18. október 2010. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |