Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 667/2012

Nr. 667/2012 10. júlí 2012

REGLUR
um félagslega liðveislu í Húnaþingi vestra.

1. gr.

Fræðslu- og velferðarsvið Húnaþings vestra annast félagslega liðveislu við fatlað fólk sbr. 24. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks með síðari breytingum. Með félagslegri liðveislu (hér eftir liðveislu) er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð við að njóta menningar og félagslífs. Liðveisla er ekki ætluð til að aðstoða við athafnir daglegs lífs. Að öðru leyti miðast réttur til liðveislu við ákvæði 13. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum.

2. gr.

Rétt til liðveislu eiga annars vegar fatlaðir einstaklingar sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðs fólks, sem búa í heimahúsum og hinsvegar íbúar á sambýlum og þjónustuíbúðum fyrir fatlað fólk. Liðveisla er veitt fötluðum einstaklingum sem eru 6 ára eða eldri.

3. gr.

Sækja skal um liðveislu á þar til gerðu eyðublaði. Við mat á þjónustuþörf skal tekið tillit til fötlunar, heimilisaðstæðna og þeirrar þjónustu sem sá fatlaði nýtur. Félagsmálaráð afgreiðir umsóknir.

4. gr.

Hámark liðveislutíma skal að jafnaði vera 30 tímar á mánuði fyrir þá sem búa í heimahúsum og 5 tímar fyrir íbúa á sambýlum/þjónustuíbúðum. Heimilt er að greiða útlagðan kostnað fyrir liðsmann vegna liðveislu en þjónustuþegi greiðir eigin útgjöld. Akstur skal að hámarki vera 150 km á mánuði og annar útlagður kostnaður kr. 3.000 á mánuði.

5. gr.

Fyrsta samþykkt skal að jafnaði vera lengst til þriggja mánaða. Eftir endurmat skal samþykkt vera lengst til sex mánaða. Samþykktir um liðveislu umfram það sem kemur fram í 4. gr. skulu vera tímabundnar.

6. gr.

Fræðslu- og velferðarsvið leggur mat á þjónustuþörf, hefur umsjón með þjónustunni og veitir handleiðslu til liðsmanns. Fræðslu- og velferðarsvið heldur einnig skrár yfir einstaklinga sem fá liðveislu og fagaðila sem veita liðsmönnum ráðgjöf.

7. gr.

Gerður skal samningur við liðsmann um hvert verkefni þar sem kveðið er á um samningstímabil, mánaðarlega vinnuskyldu og skipulag starfs. Liðsmaður er bundinn þagnarskyldu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LN og Samstöðu (SGS).

8. gr.

Reglur þessar, sem settar eru á grunvelli 24. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, voru samþykktar á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 14. júní 2012 að fengnum tillögum félagsmálaráðs, öðlast þegar gildi.

  Hvammstanga, 10. júlí 2012.

Skúli Þórðarson,
sveitarstjóri Húnaþings vestra.


B-deild - Útgáfud.: 25. júlí 2012

  Til baka