1. gr. 12. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Sá sem lokið hefur vélgæslunámi samkvæmt reglugerð settri af menntamálaráðuneyti eða sveinsprófi í vélvirkjun, hefur öðlast rétt til að vera vélavörður á skipum 12 metrar og styttri að skráningarlengd með vélarafl 750 kW eða minna (Skírteini: Smáskipavélavörður (SSV)). Að loknu viðbótarnámi (RAF103 og tveir af eftirfarandi þremur áföngum; RAF253, VST204 og KÆL122, Véltækniskólanum er heimilt að meta sambærilega áfanga jafngilda) sem skilgreint er í námskrá öðlast hann rétt til að vera vélavörður á skipi með 750 kW vél og minni (Skírteini: Vélavörður (VV)) og yfirvélstjóri á skipi með 750 kW vél og minni og 24 metrar og styttri að skráningarlengd að loknum 4ra mánaða siglingatíma sem vélavörður (Skírteini: Vélavörður (VVY)). 2. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1., 3. og 4. mgr. 5. gr., 1. og 3. mgr. 6. gr., 3. og 4. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 19. gr. laga um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007 og staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 2. nóvember 2010. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |