Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 440/2010

Nr. 440/2010 28. apríl 2010
REGLUGERÐ
um störf og starfshætti undanþágunefndar grunnskóla.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til starfa og starfshátta undanþágunefndar grunnskóla. Starfssvið nefndarinnar tekur til grunnskóla hvort sem þeir eru reknir af sveitarfélögum eða á grundvelli viðurkenningar mennta- og menningarmálaráðherra, sbr. 43. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.

2. gr.

Hlutverk.

Undanþágunefnd grunnskóla metur umsóknir skólastjóra um heimild til þess að lausráða starfsmann til kennslu við grunnskóla sbr. 1. gr. sem ekki hefur leyfi mennta- og menningarmálaráðherra til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

Undanþágunefnd ákveður hvort umbeðin heimild skuli veitt eða henni synjað. Nefndin getur einvörðungu heimilað lausráðningu til kennslustarfa til bráðabirgða og aldrei lengur en til eins árs að fullnægðum þeim skilyrðum sem sett eru í reglugerð þessari.

3. gr.

Skipun.

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar undanþágunefnd grunnskóla til fjögurra ára í senn. Nefndin skal skipuð fjórum fulltrúum, einum fulltrúa tilnefndum af heildarsamtökum kennara, einum fulltrúa tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, einum fulltrúa tilnefndum af samstarfsnefnd um háskólastigið og einum fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.

4. gr.

Umsóknir.

Umsókn til undanþágunefndar grunnskóla um heimild til að lausráða tiltekinn starfsmann án réttinda skal rituð á þar til gert eyðublað. Í umsókn skal tilgreina eftirfarandi:

  1. nákvæmar upplýsingar um það hvar og hvenær starfið var auglýst,
  2. heiti kennslugreina, starfshlutfall, vikulegur kennslutími og aldur nemenda,
  3. ráðningartímabil.

Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn:

  1. ljósrit af auglýsingu,
  2. gögn um menntun, kennsluferil og starfsreynslu viðkomandi umsækjanda, ásamt umsögnum um starfshæfni hans,
  3. greinargerð skólastjóra og skólanefndar um sjónarmið sem liggja til grundvallar beiðni um undanþágu, ef umsækjandi án réttinda er tekinn fram yfir umsækjanda með leyfisbréf á grunnskólastigi.

Ef óskað er eftir endurráðningu starfsmanns sem er í kennsluréttindanámi skal fylgja staðfesting á náminu og áætlun um námsframvindu.

5. gr.

Skilyrði undanþágunefndar fyrir umfjöllun um umsóknir.

Skilyrði þess að undanþágunefnd fjalli um umsókn skólastjóra eru:

  1. að laust kennslustarf í grunnskóla hafi verið auglýst í samræmi við 18. gr. laga nr. 87/2008,
  2. að enginn grunnskólakennari hafi sótt um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu,
  3. að þrátt fyrir að grunnskólakennari hafi sótt um starfið geti hvorki skólastjóri né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn mælt með ráðningu hans og skriflegur rökstuðningur þessara aðila fylgi með umsókninni,
  4. að upplýsingar og gögn skv. 4. gr. liggi fyrir eftir því sem við á.

6. gr.

Skilyrði vegna auglýsinga.

Undanþágunefnd kannar hvort skilyrðum um auglýsingu kennarastarfs, sbr. a. og b. lið 5. gr., sé fullnægt áður en nefndin tekur umsókn til efnislegrar umfjöllunar.

Telji nefndin að ekki hafi verið staðið rétt að auglýsingum ber henni að tilkynna það skólastjóra formlega og leita skýringa. Ef skriflegar skýringar skólastjóra reynast ekki fullnægjandi að mati nefndarinnar vísar nefndin umsókninni frá.

Skylda sveitarfélaga og annarra rekstraraðila til auglýsingar á einnig við um lausráðningu starfsmanns til kennslu sem ekki hefur leyfi skv. 4. gr. laga nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Nefndinni er heimilt að víkja frá ákvæði um endurtekna auglýsingu ef um er að ræða endurráðningu starfsmanns sem er í kennsluréttindanámi, sbr. 2. málslið 18. gr. laga nr. 87/2008 um menntun kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

7. gr.

Lausráðning án aðkomu undanþágunefndar.

Skólastjóri þarf ekki að leita til undanþágunefndar þegar um er að ræða ráðningu sérfræðings til kennslu sem nemur 240 mínútum á viku eða minna, sbr. 11. gr. laga nr. 87/2008.

8. gr.

Mat á umsóknum.

Ef skilyrði 5. gr. eru uppfyllt metur undanþágunefnd umsókn og ákveður hvort heimila skuli að lausráða starfsmann án kennsluréttinda til kennslu. Nefndinni ber að leggja mat á umsókn um lausráðningu starfsmanns á faglegum grunni og byggja mat sitt á málefnalegum sjónarmiðum sem eru til þess fallin að markmið laga nr. 91/2008 um grunnskóla nái fram að ganga.

Nefndin skal taka mið af upplýsingum um menntun, kennsluferil og starfsreynslu umsækjanda og öðrum atriðum er fram koma í umsögn er snerta hæfi hans til starfans.

Starfsmaður sem ráðinn er á grundvelli heimildar undanþágunefndar skal ráðinn með sérstökum ráðningarsamningi til ákveðins tíma með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Slíkur starfsmaður má ekki bera starfsheitið grunnskólakennari og ekki má endurráða hann án undangenginnar auglýsingar.

9. gr.

Athugasemdir kennara.

Áður en undanþágunefnd veitir heimild til undanþágu skal nefndin gefa grunnskóla­kennara kost á að tjá sig um framkomin gögn í máli þegar hvorki skólastjóri né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn treysta sér til að mæla með honum.

10. gr.

Afgreiðslufrestur.

Undanþágunefnd skal afgreiða beiðni eins fljótt og verða má, að jafnaði innan þriggja vikna frá því að umsókn barst henni í hendur. Ef mál er viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal nefndin tilkynna hlutaðeigandi það og tilgreina hvenær afgreiðslu sé að vænta.

11. gr.

Verklag.

Meirihluti atkvæða ræður niðurstöðu undanþágunefndar. Ákvörðun nefndarinnar skal vera skrifleg. Synji nefndin umsókn skal ákvörðunin rökstudd þar sem fram koma þau sjónarmið sem niðurstaðan byggist á. Ákvarðanir nefndarinnar skulu birtar skólastjóra svo fljótt sem auðið er og skulu skráðar í málaskrá undanþágunefndar. Um varðveislu gagna undanþágunefndar fer samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985 og fyrirmælum settum samkvæmt þeim.

Nefndin skal árlega senda mennta- og menningarmálaráðherra, og þeim sem tilnefna fulltrúa í nefndina, skýrslu um starfsemi sína á liðnu skólaári og birta opinberlega.

12. gr.

Trúnaður.

Undanþágunefnd og starfsmönnum hennar ber að gæta trúnaðar um öll einkamálefni sem þeir komast yfir í starfi sínu eða í tengslum við það. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi eða setu í nefndinni.

13. gr.

Málskot.

Skólastjóri eða grunnskólakennari, sbr. c-lið 5. gr., getur skotið ákvörðun um veitingu eða synjun undanþágunefndar grunnskóla til mennta- og menningarmálaráðherra. Málskot frestar þó ekki réttaráhrifum ákvörðunar nefndarinnar.

Skólastjóra er ekki heimilt að ráða starfsmann í þessu tilfelli fyrr en ráðherra hefur veitt undanþágu vegna viðkomandi einstaklings.

14. gr.

Málsmeðferð.

Um málsmeðferð hjá undanþágunefnd fer að öðru leyti skv. stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

15. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. heimild í 18. gr. laga nr. 87/2008 um menntun kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 751/1998 um undanþágunefnd grunnskóla.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 28. apríl 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 20. maí 2010