Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1085/2008

Nr. 1085/2008 6. nóvember 2008
REGLUGERÐ
um kröfur um tíðnibil í talsamskiptum milli loftfara og stöðva á jörðu niðri í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að kveða á um kröfur um tíðnibil í talsamskiptum milli loftfara og stöðva á jörðu niðri í samevrópska loftrýminu.

2. gr.

Gildissvið.

Með reglugerðinni er mælt fyrir um samræmda innleiðingu á talfjarskiptum milli loftfara og stöðva á jörðu niðri sem byggja á 8,33 kHz rásabreidd.

3. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð (EB) nr. 1265/2007 um kröfur um tíðnibil í talsamskiptum milli loftfara og stöðva á jörðu niðri í samevrópska loftrýminu, frá 26. október 2007 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2008, frá 14. mars 2008, birt í EES-viðbæti nr. 42, bls. 15.

Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

4. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 75. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 6. nóvember 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2008