1. gr. Landinu er skipt í níu umdæmi sýslumanna. Eiga sveitarfélög undir hvert þeirra, sem hér segir: Umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær og Kópavogsbær. Aðalskrifstofa: Höfuðborgarsvæðið. Sýsluskrifstofur og önnur útibú: Samkvæmt ákvörðun ráðherra hverju sinni eftir tillögu sýslumanns.
Umdæmi sýslumannsins á Vesturlandi: Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Snæfellsbær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær og Dalabyggð. Aðalskrifstofa: Stykkishólmur. Sýsluskrifstofur: Akranes, Borgarnes. Önnur útibú: Ólafsvík, Búðardalur.
Umdæmi sýslumannsins á Vestfjörðum: Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Strandabyggð. Aðalskrifstofa: Patreksfjörður. Sýsluskrifstofa: Ísafjörður. Önnur útibú: Bolungarvík, Hólmavík.
Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi vestra: Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur. Aðalskrifstofa: Blönduós. Sýsluskrifstofa: Sauðárkrókur.
Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi eystra: Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð. Aðalskrifstofa: Húsavík. Sýsluskrifstofur: Akureyri, Siglufjörður. Annað útibú: Dalvík.
Umdæmi sýslumannsins á Austurlandi: Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur. Aðalskrifstofa: Seyðisfjörður. Sýsluskrifstofur: Egilsstaðir, Eskifjörður. Annað útibú: Vopnafjörður.
Umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi: Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus. Aðalskrifstofa: Selfoss. Sýsluskrifstofa: Höfn. Önnur útibú: Hvolsvöllur, Vík.
Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum: Vestmannaeyjabær. Aðalskrifstofa: Vestmannaeyjabær.
Umdæmi sýslumannsins á Suðurnesjum: Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Vogar. Aðalskrifstofa: Reykjanesbær. Annað útibú: Grindavík.
2. gr. Ef mörk milli umdæma sýslumanna eru óskýr, svo sem á hálendinu, ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar. Á sama hátt ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar ef það getur af einhverjum ástæðum átt undir fleiri en einn sýslumann. 3. gr. Á aðalskrifstofu sýslumanns og öðrum sýsluskrifstofum er veitt öll sú þjónusta sem sýslumönnum ber að veita samkvæmt lögum, reglugerðum og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum. Í útibúum er veitt þjónusta á tilteknum tímum eftir því sem sýslumaður ákveður. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. og 9. gr. laga nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, öðlast gildi 1. janúar 2015. Fellur þá úr gildi reglugerð nr. 66/2007 um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lögreglustjóra, með áorðnum breytingum. Innanríkisráðuneytinu, 19. desember 2014. Ólöf Nordal. Ragnhildur Hjaltadóttir. |