Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 412/2013

Nr. 412/2013 24. apríl 2013
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir.

1. gr.

2. mgr. 11. gr. hljóðar svo:

Lyf við tilkynningarskyldum sjúkdómi, sbr. viðauka II í fylgiskjali 1, ávísað frá göngu­deildum skv. 1. gr., heilsugæslustöð eða af sérgreinalækni greiðist af Sjúkratryggingum Íslands. Leyfisskyld lyf eru greidd af Sjúkratryggingum Íslands, sbr. 14. gr. reglugerðar nr. 313/2013 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði. Læknir skal staðfesta á lyfseðli að um tilkynningarskyldan sjúkdóm sé að ræða. Sjúkratryggingar Íslands geta sett skilyrði um að notuð séu ódýrustu lyfin hverju sinni ef um er að velja fleiri en eitt lyf með sambærilega verkun. Samþykki fyrir fullri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga skal að jafnaði háð því að notaðar séu hagkvæmustu pakkningastærðir hverju sinni og að tilkynning um smitsjúkdóm hafi verið send sóttvarnalækni.

2. gr.

Í stað viðauka II „Lyf við tilkynningarskyldum sjúkdómum sem greiðast af göngudeildum eða Sjúkratryggingum Íslands, sbr. 11. gr.“ komi nýr viðauki sem birtur er með reglu­gerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, sbr. 12., 16. og 17. gr., öðlast gildi frá og með 4. maí 2013.

Velferðarráðuneytinu, 24. apríl 2013.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 2. maí 2013