1. gr. Við 4. gr. bætist nýr stafliður, sem orðist svo: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 29/2009 frá 16. janúar 2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2009 frá 3. júlí 2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, 20. maí 2010, bls. 123.
2. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 21. maí 2010. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |